Bankasala

Ég held að sala Landsbankans og Búnaðarbankans hljóti að teljast með stærstu afglöpum í einkavæðingu á vesturlöndum um áratugi ef ekki aldir.  Mér finnst vera stór spurning er hvort þeir embættismenn sem sömdu um þetta ferli á sínum tíma eigi ekki að sæta forgangsrannsókn sérstaks saksóknara fyrir afglöp í starfi.  Það eru ekki bara kaupendurnir sem rústuðu þessu dæmi, seljendurnir hafa stóra ábyrgð líka fyrir að selja þetta til aðila sem auðsjáanlega höfðu enga reynslu né þekkingu á bankarekstri og höfðu ekki fjármagn til þess að kaupa bankana.  Hversvegna voru ekki hlutabréf í bönkunum seld á almennum markaði í stað þess að selja þá útvöldum aðilum sem síðan hvorki vissu hvað þeir voru að gera né höfðu bolmagn til þess að kaupa bankana?  Þeir sem stóðu á bak við þetta eru að mínu mati sekir um alvarlegt dómgreindarleysi og hrein afglöp í starfi og ættu skilyrðislaust að sæta ábyrgð fyrir dómstólum.

Það er alveg með eindæmum að þessir bankar sem voru seldir á slikk til aðila, sem gátu síðan ekki staðið í skilum með afborganir af þeirra eigin lánum fyrir kaupverðinu, hafi síðan komið Íslandi á vonarvöl með hverju afglapaverkinu á fætur öðru.  Ég bara kemst ekki yfir að þessir menn hafi ekki haft döngun í sér til þess að greiða þessar skuldir og koma þessum fyrirtækjum svo gersamlega í rúst að það er leitun að öðru eins.  Enron er það eina sem kemur upp í hugann hjá mér. 

Þessi endaleysa með krosstengslum og lánum byrjaði sem sagt ÁÐUR en sölu bankanna var lokið - það var byrjað á því að lána í kross til þess að kaupa bankana og svo var bara haldið áfram og ný fyrirtæki stofnuð sem var svo lánað úr bönkunum til þess að kaupa í öðrum félögum og þar með hækka eignir án þess að nokkur skapaður hlutur stæði á bak við þetta.  Það var hvorki fjármagn né eignir á bak við sölu bankanna heldur einungis lán frá þessum sömu bönkum til þeirra aðila sem keyptu þá.  Þetta dæmi verður einfaldlega fáránlegra og fáránlegra með hverjum degi sem líður. 

Hvar voru dagblöðin og blaðamenn síðasta áratuginn?  Hvar voru eftirlitsaðilarnir?  Voru allir keyptir til þess að þegja?  Voru allir sofandi á vaktinni? 

Kveðja,


mbl.is Dýrt fyrir ríkið að selja banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Einkavæðingarefndin átti að segja af sér þegar ráðherranefndin tók völdin. Þeir ráðherra sem sátu í þessari nefnd voru Davíð, Halldór, Geir og Valgerður Sverrisdóttir. Þetta er fólkið sem sveik þjóð sína.

 Að hugsa sér að enn skuli 37% þjóðarinnar styðja Sjálfstæðis og Framsóknarflokk. Eru þessi 37% svona óheiðarleg og siðlaus, eða hvers vegna styður fólk menn og flokka sem eru svona gjörspilltir? Ég skil það ekki. Hvenær ætlar fólk að opna augun?

Þetta er svo ógeðslega siðspillt að maður á ekki til eitt einasta aukatekið orð yfir þetta, hvað var Sjálfstæðis og Framsóknarflokkur eiginlega að pæla, að láta svona eins og þeir eigi landið og allt innan þess?

Venjulegu og heiðarlegu fólki er algjörlega misboðið og ég get ekki að því gert annað en að undrast það að enn skuli þriðjungur þjóðarinnar styðja Íslandsmeistarann í spillingu, Sjálfstæðisflokkinn! Hvernig getur nokkur manneskja tekið ákvörðun um að styðja þá sem gera svona gegn þjóð sinni? Ég bara botna það ekki. Ég gæti aldrei verið í vinnu fyrir fólkið í landinu og réttlætt fyrir sjálfum mér að gera svona hluti, aldrei. Mér finnst þetta vera álíka óheiðarlegtog að vera sjálfur að stela frá þjóðinni.

Valsól (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 11:02

2 identicon

Sælir,

Er reyndar brottfluttur forritari einsog þú, bara búsettur í mið evrópu núna.

Flutti út þegar "góðærið" stóð sem hæst og skildi reyndar aldrei hvernig þetta var hægt...hélt bara að ég væri svona vitlaus og allir hinir svo klárir.

Ég reyndar glotti alltaf þegar ég sá Íslendinga monta sig af því að vera minnst spilltasta land í heimi (eða ofarlega á lista)..vissi vel að það var ekki satt og ef þú hafðir ekki rétt sambönd "heima" þá gekk hvorki né rak með neitt af því sem maður vildi gera. Mútur voru kannske ekki í cash undir borðið (sem er kannske bara hreinlegast), heldur í allskyns fyrirgreiðslu og þar voru pólitíkusar verstir, hvoru megin sem þeir voru. Stundum kom þetta vel í ljós líka með embættismenn...gleymi ekki þegar ég var að sækja um að geta byggt bílskúr í Hafnarfirði þegar fulltrúinn sagði mér að það yrði ekki samþykkt nema að tiltekinn aðili væri fenginn til að teikna herlegheitin...

Þetta eru nú bara smámál miðað við sjálftektina sem gerði hálfan framsóknarflokkinn ríkan á sínum tíma og kvótagjörninginn sem færði megnið af auðæfum landsins á fáar hendur....þetta ber allt að sama brunni: Ótrúleg spilling og siðleysi á öllum stöðum.

Ég held því miður að það sé of seint að bjarga þessu. Allt orðið of djúpt sokkið og rotturnar búnar að flýja skipið....er það ekki alltaf svoleiðis ?

Ég allavega tók ekki þátt í þessu og þakka fyrir að hafa farið á sínum tíma.

Kveðja,

Eman.

eman (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 12:02

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband