Brot á reglum um klóset tíma

Það er margt manna bölið og nú er orðið svo komið að fólk þarf að hafa skeiðklukku með sér á salerni skemmtistaða svo það eigi ekki yfir höfði sér allskonar óþægindi og jafnvel handtöku.  

Ég reyndi að finna eitthvað um svona tímareglur fyrir klósettveru á skemmtistöðum hjá EU, en fann ekkert, svo það væri öllum til hagsbóta að þessar reglur séu auglýstar vel og vandlega í fjölmiðlum.  Það væri illa komið ef menn þyrftu að vera tosaðir út með góðu eða illu í miðri biðskák við páfann.  Í sumum tilfellum væri það stórhættulegt ef steinsmugusprengingar eru yfirvofandi og vissara að útkastararar og lögregla séu tilbúin í biohazard klæðnaði og vel settir grímum í bak og fyrir.

Hasarinn út af þessu er svo fyndinn að það hálfa væri nóg.  Þingmaður verður fullur og sest að á klósettinu umfram reglugerðir og þar að fjarlægja hann.  Mér finnst líklegt að það hafi skeð áður enda þingmenn margir með mikið þol fyrir göróttum veigum, amk. hér í gamla daga.  En nú þarf að hafa vit fyrir fólki og skipa því tíma á kamrinum og ekkert helvítis múður með að það sé að yfirtaka taflborðið eða í miðri Sikileyjarvörn gegn páfanum!

Svo mörg voru þau orð!

Kveðja


mbl.is „Ég var dónaleg og streittist á móti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslandsvinir og vandamenn

Orðið "íslandsvinur" er notað um hvern þann, sem hefur komið til Íslands og hefur fengið nafn á "prent" hvort sem er í bók eða sönglagi, eða bara einhversstaðar á samfélagsmiðlum!  Þetta orð er svo útvaskað að það er hreinlega hlægilegt að sjá svona fyrirsagnir.  

Er ekki hægt að leggja þessu orð við hlið zetunnar og láta það bara eiga sig?  

Kveðjur frá Wisconsin!


mbl.is Varð Íslandsvinur á covid-tímanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband