Brotalamir

Hvernig geta fyrirtæki sem eru óvirk og EKKI í rekstri fengið lán?  Og ekki bara eitthvað smáræði heldur yfir eitt þúsund milljarða króna!  Samkvæmt gengi í gær, 19 Ágúst, þá eru þúsund milljarðar 7,737 milljarðar bandaríkjadollara og skipt á þessi 14.912 óvirk fyrirtæki þá jafngildir þetta US$518.880 eða 67.060.085 krónum á hvert einasta af þessum fyrirtækjum. 

Hvernig í ósköpunum eiga þessi fyrirtæki, sem eru óvirk og ekki í rekstri og þar af leiðandi ekki með tekjur greitt af þessum lánum?  Hvernig í ósköpunum hefur bankakerfið orðið þannig að fyrirtæki sem er ógerlegt að greiða skuldir sínar getur safnað meira en hálfri milljón dollara í skuldir án þess að neinn hafi tekið eftir? 

Ég get rétt ímyndað mér hvernig einstaklingi væri tekið ef hann kæmi inn í banka hér í Bandaríkjunum og bæði um hálfa milljón og léti þess jafnframt getið að hann ætti engar eignir og hefði engar tekjur.  Ég veit hvernig þetta var á Íslandi og einstaklingi sem hefði reynt þetta hefði umsvifalaust hent út úr bankanum!

Þetta bara er ekki heilbrigt og ekki heil brú í þessu rugli!

Kveðja,

 


mbl.is Skulduðu yfir þúsund milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband