3.8.2009 | 16:14
Uppgjör í uppnámi
Var ekki hægt að bíða með þetta þar til þessar nefndir höfðu gengið frá samningum við kröfuhafana? Það er eins og allt sé gert vitlaust í þessum málum. Skv. fréttum átti að vera búið að ganga fram þessum uppgjörum þann 14. ágúst eða eftir 11 daga. Hverju munaði um hvort þessir menn hefðu starfað fram að þeim tíma? Að mínu mati var þörf manna frá gömlu bönkunum í skilanefndirnar til að greiða aðgang og auðvelda þá vinnu sem skilanefndirnar stóðu frammi fyrir. Að segja þessum mönnum að taka pokann sinn þegar mest á ríður að ganga fram samningum við kröfuhafa er afskaplega klaufalegt og sýnir að Fjármálaeftirlitið er ekki í takt við raunveruleikann.
Svo vitnað sé í ruv.is: "Fréttastofan hefur heimildir fyrir því að í flóknu uppgjöri við kröfuhafa Landsbankans hafi allt farið uppí loft á föstudag. Fyrir var ágreiningur um mat á eignum og hvernig ganga eigi frá uppgjöri milli gamla og nýja bankans. Ekki hafi bætt úr skák þegar tveimur af fjórum skilanefndarmönnum hafi verið vikið frá, fyrirvaralaust. Kröfuhafarnir hafi einfaldlega staðið upp frá borðum í fússi og haft í hótunum um málaferli og glæparannsóknir. "
Kannski er þetta bara gott ef þetta verður til þess að erlendir rannsóknaraðilar fá áhuga á þessu máli og hefja sjálfstæðar glæparannsóknir!
Kveðja,
![]() |
Mannanna ekki lengur þörf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |