Ábyrgð bankanna

Ég skora á þingmenn að koma sér saman um löggjöf sem kemur algjörlega í veg fyrir að sparibaukar eins og þeir sem starfræktir voru fyrir hrun geti komið upp bankastarfsemi og að bankarnir verði undir öllum kringumstæðum að bera 100% ábyrgð á innistæðum og að þeir geti ekki undir nokkrum kringumstæðum varpað ábyrgð yfir á Íslenska ríkið og Íslenska skattgreiðendur.  Eins að erlend stjórnvöld geti ekki varpað ábyrgð yfir á Íslenska ríkissjóðinn í neinni mynd, a.m.k. ekki næstu 15 árin.

Það tók sparigrísina eingöngu 6 ár að keyra bankakerfið og Íslenskan efnahag í þrot svo eftir standa rjúkandi rústir.  Ísland á ekki að byrja að borga af Icesave fyrr en eftir 7 ár og það er nægur tími fyrir nýja sparigrísi til að kollkeyra bankakerfið alveg upp á nýtt.  Ísland hefur ekki efni á svona grísum og það þarf að halda þeim í stíunni svo þeir komist ekki til að grafa landið endalega.

Kveðja,

 


mbl.is Bankarnir verði sjálfstæðir í ákvörðunartökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldbindingar

Hollendingar og Bretar skilgreina alþjóðlegar skuldbindingar öðruvísi en önnur ríki gera að því er mér virðist.  Þeir ákváðu að borga innistæðueigendum upp í topp og senda svo reikninginn til Íslands og kalla þennan reikning skuldbindingu.  Ísland átti engan þátt í því að skapa þessar skuldbindingar.  Mikið væri ég glaður ef ég gæti sent einhverjum þá reikninga sem ég borga og sagt viðkomandi að það séu hans skuldbindingar!  Bos og Darling eru, ásamt Íslensku ríkisstjórninni, að skapa vítavert fordæmi fyrir algjörri ríkisábyrgð á gjörðum einkafyrirtækja. 

Ég legg til að Íslenska ríkisstjórnin taki saman hversu mikið magn af fiski Hollensk og Bresk fyrirtæki öfluðu innan 200 mílna lögsögu Íslands frá 1900 og sendi Hollensku og Bresku ríkisstjórnunum reikning fyrir áætluðu aflamagni og Íslandi kalli það alþjóðlegar skuldbindingar og sæki samninga um það jafnhart og Bretar og Hollendingar hafa sótt Icesave.  Það væri líka hægt að hengja við þetta okur á olíuverði frá BP og Shell og krefjast endurgreiðslu upp á nokkur hundruð milljarða fyrir það.  Flækja þessar ríkisstjórnir í eigin rugli svo þeir fái að kenna á óréttlátum fjárkröfum fyrir framferði einkafyrirtækja!

Kveðja,


mbl.is Bos: Ekki hægt að hlaupast á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. janúar 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband