29.4.2015 | 00:20
Trúarbrögð gegn konum
Í gegnum aldirnar hefur hin kristna kirkja, eins og sú íslamska, gert hvað hún getur til að berja niður sjálfstæði kvenna til ákvarðana sem varða þeirra eigið líf og eigin líkama. Kirkjan ákvað á sínum tíma að konur væru réttdræpar fyrir galdra. Kirkjan ákvað að konur væru ekki jafn réttháar körlum. Kirkjan ákvað að konur ættu að vera undirgefnar körlum og karlaveldið skyldi blíva með góðu eða illu. Þetta er allt ógurlega miðaldalegt en það er víst hluti fólks í hinum vestræna heimi sem lifir í þeirri trú og von að sextánda öldin komi aftur. Ég vona til allra góðra vætta að þessum rugludöllum verði ekki að ósk sinni og að fólk getir haldið áfram inni framtíðina í stað þess að kveða upp drauga ömurlegrar fortíðar til þess að friðþægja fáeinum bullustrokkum.
Kveðja,
![]() |
Auðmýkjandi og ekki hlutlaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |