Afsögn!

Afsökunarbeiðnir, sem hafa meiningu og sýna iðrun viðkomandi vegna gjörða sinna eru góðra gjalda verðar.  En þetta mál verður bara ekki afsakað!  Þetta fólk á að sjá sóma sinn í því að segja umsvifalaust af sér þingmennsku og ekki koma nálægt störfum fyrir hið opinbera það sem eftir er!  Þetta er ekkert annað en sandkassalið, með skítakjaft um kollega sína þegar viðkomandi getur engum vörnum við komið.  Eins auvirðilegt og hugsast getur!  

Kveðja,


mbl.is „Ekki ætlun okkar að meiða neinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segi af sér með skömm

Það virðist vera kjarni af sandkassaliði á Alþingi, sem er á svipuðu þroskastigi og Donald Trump, svona í kringum fjögurra ára.  Samlíkingin er reyndar móðgun við 4ra ára!

Þetta sandkassalið á að segja af sér þingmennsku með skömm.  Hvar er þetta fólk eiginlega alið upp?  Ekki hjá ærlegu fólki, svo mikið er víst!

Svona framkoma eins og hefur verið sagt frá í gær og í dag er gersamlega ólíðandi og óalandi.  Burt með þetta lið!  

Kveðja


mbl.is Segir ummælin vera hatursorðræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband