18.9.2018 | 22:14
Allir tapa
Það tapa allir á þessu viðskiptastríði og þeir sem mestu tapa eru Bandarískur almenningur og Bandarískur iðnaður. Héðan frá Port Angeles eru fluttar milljónir trjábola á hverjum mánuði til úrvinnslu í Kína. Þessi útflutningur er einn af grunnstoðum atvinnulífsins hér. Ef hann dettur uppfyrir missa nokkur hundruð manns vinnuna. Í 20 þúsund manna bæ, þá er það mikið mál að halda viðskiptum við Kína í góðu horfi.
Þessi fíflalæti í kexinu í Hvíta húsinu eiga eftir að hafa mikil og neikvæð áhrif á efnahag Bandaríkjanna á komandi árum. Kínverjar hafa þegar beint veigamiklum viðskiptum með landbúnaðarvörur frá Bandaríkjunum til Rússlands og annarra landa í Asíu og Evrópu.
Kveðja,
Viðskiptadeilan magnast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |