Vodki er ekki yfir 60%!

Greinarhöfundur virðist flaska á "proof" og prósentum.  Áfengi sem er 40 "proof" er 20% áfengi.  80 proof er 40%  Vodki er yfirleitt um 40% áfengi og það er því gersamlega ómögulegt að nota hann til að fá blöndu með 60% áfengismagni!  

 

Fréttin í Business Insider ráðleggur isoprophyl alkohol, sem er 91% og nota 2/3 á móti 1/3 af aloa vera.  

 

Endilega skoða hvað fólk er að ráðleggja og athuga hvort það stenst!  Í þessu tilfelli stenst þetta alls ekki og ef fólk notar þetta sem er veikt fyrir er það að hætta lífi sínu!   Handspritt kemur ekki í staðinn fyrir handþvott, en hjálpar verulega til að draga úr gættinni á að fólk smiti sjálft sig með því að snerta flestir sem mengast auðveldlega og ber svo hendurnar upp að andlitinu.  

Kveðja,


mbl.is Gerðu þitt eigið spritt með þessu þrennu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband