5.1.2012 | 22:47
Gríðarlegar hækkanir?
Samkvæmt New York Stock Exchange þá var verð á olíu US$98,83 þann 30. desember - það hefur rambað aðeins upp fyrir $100 á tunnuna eftir áramótin aðallega vegna ótta við átök á Persaflóa. Skv. sömu upplýsingum var verðið $100,96 þann 2. desember, $98,99 þann 11. nóvember o.s. frv. Hækkun úr 904 dollurum í 988 dollara tonnið er hækkun upp á rétt rúm 9%
Mér sýnist að olíufélögin haldi sínu striki og hækki rausnarlega í hvert skipti sem tækifæri gefst en sé þau ekki jafn áfjáð í að lækka verðið. Hér í Bandaríkjunum hefur verð á bensíni lækkað vegna minnkandi eftirspurnar og hefur verið nokkuð stöðugt á dælunum í kringum $3,45 eða svo fyrir gallonið en var komið upp í kringum $3,90 gallonið snemma í haust hérna í Port Angeles (til fróðleiks sjá: http://www.washingtongasprices.com/Port_Angeles/index.aspx)
Kveðja,
Gríðarlegar verðhækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Athugasemdir
Ég ætla sko ekki að bera blak af olíufélögunum, síður en svo, en þú gleymir að hækkunin í krónum séð er ekki so mikil hjá þeim, en RÍKIÐ leggur við prósentulega á eldsneytið og það er sko einhver hellingur! Hvernig væri að ríkið hætti því? Þar ætti að ver þak sem er löngu löngu komið.
Helena (IP-tala skráð) 6.1.2012 kl. 07:53