20.8.2009 | 06:45
Brotalamir
Hvernig geta fyrirtæki sem eru óvirk og EKKI í rekstri fengið lán? Og ekki bara eitthvað smáræði heldur yfir eitt þúsund milljarða króna! Samkvæmt gengi í gær, 19 Ágúst, þá eru þúsund milljarðar 7,737 milljarðar bandaríkjadollara og skipt á þessi 14.912 óvirk fyrirtæki þá jafngildir þetta US$518.880 eða 67.060.085 krónum á hvert einasta af þessum fyrirtækjum.
Hvernig í ósköpunum eiga þessi fyrirtæki, sem eru óvirk og ekki í rekstri og þar af leiðandi ekki með tekjur greitt af þessum lánum? Hvernig í ósköpunum hefur bankakerfið orðið þannig að fyrirtæki sem er ógerlegt að greiða skuldir sínar getur safnað meira en hálfri milljón dollara í skuldir án þess að neinn hafi tekið eftir?
Ég get rétt ímyndað mér hvernig einstaklingi væri tekið ef hann kæmi inn í banka hér í Bandaríkjunum og bæði um hálfa milljón og léti þess jafnframt getið að hann ætti engar eignir og hefði engar tekjur. Ég veit hvernig þetta var á Íslandi og einstaklingi sem hefði reynt þetta hefði umsvifalaust hent út úr bankanum!
Þetta bara er ekki heilbrigt og ekki heil brú í þessu rugli!
Kveðja,
![]() |
Skulduðu yfir þúsund milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 23:05
Góð grein með smá hjálp
Ég rak mig í að þýðandi greinarinnar notar orðið "myrkur" sem þýðingu fyrir murky. Betri þýðing væri "gruggugt" samanber "murky water" sem er notað um gruggugt vatn.
Að öðru leyti en það þá kemur svosem ekkert á óvart í þessari grein. Það hefur verið auðséð um langt skeið að eigendur bankanna lánuðu sjálfum sér og fyrirtækum í þeirra eign til þess að knýja upp hlutabréfaverð bæði í bönkunum og öðrum fyrirtækjum í þeirra eigu.
Kveðja,
![]() |
Telegraph: Ekkert venjulegt hrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 14:40
Nokkrir með stöðu grunaðs...
Þetta er afskaplega amböguleg fyrirsögn og frétt. "Nokkrir með stöðu grunaðs manns..." Þessi ambaga að vera með "stöðu grunaðs manns" er að mínu mati hreint bull og ætti ekki að sjást. Er bara einn maður með stöðu grunaðs manns? Færi ekki betur að tala um "réttarstöðu grunaðra" eða "stöðu grunaðra manna". "Nokkrir" bendir til að það hafi verið fleiri en einn en samt er eintala hengd við þetta. Ef einhver er með réttarstöðu grunaðs manns þá þýðir það að hann sé grunaður um eitthvað og liggi undir grun um að hafa gert eitthvað af sér. Hvernig væri:
"Grunaðir yfirheyrðir hjá Sjóvá
Yfirheyrslur eru hafnar hjá embætti sérstaks saksóknara yfir mönnum sem grunaðir eru um umboðssvik"
mbl.is getur gert betur en þetta:)
Kveðja,
![]() |
Nokkrir með stöðu grunaðs hjá Sjóvá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 14:08
Yfirgnæfandi líkur...
Þetta eru vissulega ánægjulegar fréttir, en ég vil bara minna á að það voru "yfirgnæfandi líkur" á að álver, járnblendi, málmblendi, þetta og hitt risi á Reyðarfirði í hátt í 30 ár! Á meðan menn biðu eftir því sem koma skyldi rak allt annað á reiðanum þar til allt var nánast komið í kalda kol. Þegar samningar eru í höfn og hafist er handa við byggingu gagnaveranna skal ég óska aðstandandi til hamingju, þangað til bíð ég eftir að þetta fari af stað:)
Kveðja,
![]() |
Talið líklegast að risavaxið gagnaver rísi á Blönduósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2009 | 01:16
Lyktar illa
Sem áhugamaður um eldamennsku þá er farið að slá í efni þessarar fréttar. Ég held það sé alveg útilokað að geyma frosið ferskt kjöt í meira en mesta lagi 1-2 ár. Ég man eftir í gamladaga þegar maður var að kaupa heila lambsskrokka sem voru orðnir ársgamlir og þeir voru illa þurrir og langt frá því að vera góður matur og alls ekki bjóðandi á veitingastöðum. Nú þekki ég ekki mikið til hvalkjöts en það er kjöt af spendýri líkt og lambakjöt, nautakjöt, svínakjöt o.s.frv. Ég hef því ekki trú á að geymsluþol þess í frosti sé meira en 6-12 mánuðir. 17 ár er alveg út í hött að mínu mati.
Kveðja og bon appetit:)
![]() |
Hvalkjötið dugði Úlfari í sautján ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2009 | 16:53
Vanhæfni
Þó svo að ég gagnrýnt Davíð á sínum tíma vegna andvaraleysis Seðlabankans fyrir hrunið, þá finnst mér að komið hafi í ljós að Davíð hafi gert sér grein fyrir í hvað stefndi og reynt hvað hann taldi mögulegt til að vara ráðamenn við. Gat hann gert betur? Örugglega en ég held að hvorki hann né aðrir hafi gert sér grein fyrir því hversu hratt þetta ferli varð, né heldur hversu gríðar stórt og fallvalt þetta íslenska bankaapparatið raunverulega var orðið. Það er mikið af mjög hæfu fólki sem vann og vinnur hjá Seðlabankanum og að kenna Davíð einum um þátt Seðlabankans í hruninu er að mínu mati mikil einföldun.
Þó svo að Davíð hafi ekki haft sérfræðiþekkingu á efnahagsmálum, þá var hann í pólitík svo áratugum skipti og mikið af því sem fram fer í gegnum ráðuneytin sem hann var í fjallaði um efnahagsmál, svo ég held að hann hafi haft nokkuð glögga innsýn inn í efnahagsmál Íslands. Enda segir Anne að "neither the prime minister, nor the finance minister or financial regulator seems to have made any serious attempt to stem the growth of the Icelandic banks. "
Kveðja,
![]() |
Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 20:16
Kemur ekki á óvart
Þessi frétt kemur ekki á óvart og eitthvað sem hefur verið fyrirséð lengi. Leppfyrirtæki voru stofnuð af bönkunum út um allan heim til þess að taka lán hjá bankanum og kaupa síðan hlutabréf í bönkunum eða öðrum skráðum fyrirtækjum bankamannanna til þess að skapa peninga með svikum. Þetta hefur alltaf minnt mig á bókina "Not a penny more, not a penny less" eftir Jeffrey Archer sem lýsir svipuðu dæmi. Ný er farið að snúast ofan af svikamyllunni en ég er hræddur um að þessir peningar séu löngu tapaðir.
Kveðja,
![]() |
Undirbúa málsókn á hendur Gift |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.8.2009 | 17:54
Gert ráð fyrir 1-200
Það virðist var að koma betur og betur í ljós hversu illilega ríkisstjórnin er úr takt við raunveruleikan. Þrátt fyrir mánaðarlangar ábendingar og viðvaranir Hagsmunasamtaka Heimilanna um yfirvofani greiðsluþrot og gjaldþrot heimilanna í landinu þá áætlar ríkisstjórnin að einungis 100 - 200 manns þurfi á greiðsluaðlögun að halda. Ég skil ekki hvernig ríkisstjórnin komst að þessari niðurstöðu en ég get ekki ímyndað mér að fjöldi þeirra sem þurfa á greiðslualögun eða álíka aðgerðum skipti ekki þúsundum eða tugum þúsunda!
Kveðja,
![]() |
Þúsundir vilja greiðsluaðlögun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.8.2009 | 00:24
Íslenska ríkið skaðabótaskylt?
Þó ég sé 100% fylgjandi rannsókn SFO og annarra aðila á íslenska bankahruninu, þá má ekki gleyma því að þetta getur dregið dilk á eftir sér. Hugsanlegt er að íslenska ríkið gæti verið dæmt til að greiða sektir eða skaðabætur til aðila í Bretlandi vegna afskiptaleysis Fjármálaeftirlits, Seðlabanka og íslenska löggjafans. Ég er ekki að segja að svo sé, en það má ekki gleyma þessari hlið málsins. Ef íslenska ríkið þarf að greiða skaðabætur þá lendir það á skattgreiðendum á Íslandi rétt eins og IceSave:(
Kveðja,
![]() |
Rannsaka íslensku bankana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.8.2009 | 06:23
Bankarnir lánuðu til að kaupa sjálfa sig
Ég held að ég hafi minnst á það áður að þessi spilaborg sem byggð var í kringum íslensku bankana væri eins og hvert annað pýramída spil. Enn og aftur er þetta staðfest af fréttum af eignatengslum í Kaupþingi þar sem eigendur stofnuðu félög til að fá lánaða fjármuni hjá bankanum til þess að kaupa hlutafé í bankanum. Þarna var um gervi-eign að ræða sem ekkert var á bakvið þar sem bankinn í raun lánaði sjálfum sér til að kaupa í sjálfum sér. Hinsvegar skapaði þetta gervi-eftirspurn eftir hlutum í bankanum sem þar með hækkaði verðgildi hlutanna á markaði.
Þessi félög eru stofnuð aðeins rúmum mánuði áður en bankinn kemst í endanlegt þrot. Bankinn stofnar þessi félög fyrir viðskiptavini, lánar þessum félögum að því er virðist nánast eingöngu til þess að kaupa í bankanum, þó svo að bankinn hafi á þessum tíma vitað að hann var að fara á hausinn. Án efa hefur þetta verið gert til þess að reyna að pumpa bankann upp með þessum sýndargjörningum og koma í veg fyrir að hann færi á hausinn, í stað þess að koma fram af heiðarleika þá tók bankastjórn þann pól í hæðina að það væri hugsanlega hægt að svíkja sig út úr þessu.
Frá mínum bæjardyrum séð er þetta ekki spurning um heiðaleika eða siðferði, það er orðið alveg ljóst að hvorugt var til staðar! Núna er þetta spurning um það hvort réttarfar á Íslandi er í stakk búið til þess að taka á þessum glæpum og reyna að spyrna við fótum og taka á þessu máli af festu og einurð.
Það er ein undantekning hvað varðar heiðarleika og siðferði - sá aðili sem lak glærusafninu til wikileaks.com hefur auðsjáanlega ofboðið skorturinn á hvorutveggja og ákveðið að hafast eitthvað að í þessu efni. Þessi aðili, eða aðilar, munu örugglega eiga undir högg að sækja í framtíðinni. Ef það viðgengst meðan þeir sem stóðu á bak við þau ömurlegu vinnubrögð sem við voru höfð ganga lausir þá er ónýtt réttarfar á Íslandi!
Kveðja,
![]() |
Stórskuldug aflandsfélög í eigu hluthafa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |