Er einhver hissa?

Ég skil það vel að kröfuhafar í BYR hafi verið lítið hrifnir af því að stofnfjáreigendur ættu að fá meira en þeir og að eigendur víkjandi skuldabréfa ættu að fá eitthvað.  Það er ástæða fyrir því að þetta eru víkjandi bréf!

Mér sýnist að hér sé verið að reyna að hagræða og hygla einhverjum sem ekki eiga rétt á því á kostnað þeirra sem eiga rétt.  Hverjir skyldu eiga þessar eignir sem ekki mega tapast? 

Kveðja,

 


mbl.is Erlendir kröfuhafar Byrs gengu fúlir af fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GM í kröppum dansi

Hér í Bandaríkjunum er mikill fjöldi fólks sem lítur bíla frá General Motors miklu hornauga vegna þess að ríkið tók yfir hluta félagsins og GM fékk milljarða dollara til að rétta sig við, eftir gjaldþrot og mikla endurskipulagningu.  Það er allsendis óvíst hvort GM hefur möguleika á að rétta úr kútnum og villandi auglýsingar eiga örugglega ekki eftir að hjálpa þeim!

Kveðja,

 


mbl.is Villandi auglýsingar GM harðlega gagnrýndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óreiða í Grikkland

Ég heyrði viðtal á CBC núna seinni partinn í dag við hagfræðing sem starfaði hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, en er nú prófessor í hagfræði við háskóla í Kanada, um ástandið í Grikklandi.  Þar kom m.a. fram að skuldasöfnun hefur verið gífurleg undanfarin ár.  Skattheimta er afburða slök og mikið um undanskot og jafnvel mútur í sambandi við skatta.  M.a. kom fram að í tilraun til þess að leggja skatt á hina efnameiri var lagður skattur á sundlaugar í íbúðahverfum.  350 skiluðu skatti meðan á sama tíma sýndu loftmyndir að yfir 17 þúsund sundlaugar voru í íbúðahverfum (held þetta hafi verið í Aþenu)  Líka var bent á að á Grikklandi væru afskaplega fáir sem teldu fram háar tekjur, þ.e. yfir milljón dollara, á meðan í öllum öðrum löndum Evrópu er hlutfallið margfalt hærra en í Grikklandi.  Þá kom líka fram að eftirlaunaaldur opinberra starfsmanna (civil servants) er 57 ár og þeir fá greidd laun fyrir 14 mánuði á ári! 

Það verður fróðlegt að sjá hvernig rætist úr þessu, en Grikkir eru að mörgu leyti í verri málum en Íslendingar að mér sýnist.  Ég held að Íslendingar geti unnið sig út úr þessum vanda, en ég er ekki svo viss um Grikki.

Kveðja,

 


mbl.is Grikkland stendur nú „á barmi hyldýpisins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. maí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband