25.1.2010 | 03:43
Ekki-viðtal
Í þessari frétt er haft eftir Einari að hann hafi "...sagt við blaðamanninn að í fréttum Stöðvar 2 í kvöld hafi verið uppi vangaveltur um stöðu mála í Icesave-deilunni, og sagt að Norðmenn, Þjóðverjar eða Frakkar gætu miðlað málum"
Svo segir hann:
"Þetta er algjörlega út í hött, segir Einar Karl í samtali við mbl.is. Hann segist ekki hafa slíkar upplýsingar undir höndum. "
Hann segist hafa sagt "að Norðmenn, Þjóðverjar eða Frakkar gætu miðlað málum" en segist svo ekki hafa slíkar upplýsingar undir höndum.
Er þetta nýtt PR trikk hjá ríkisstjórninni? Segja eitthvað í samtali við blaðamann og segja svo að þessar upplýsingar séu út í hött og segjast ekki hafa þessar upplýsingar undir höndum. Svona ekki-viðtöl ná töluvert hátt á "weirdometerinn" hjá mér;)
Kveðja,
Algjörlega út í hött | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |