Misnotkun?

Í fréttinni segir:  "Gerði starfsmönnum kleift að eignast hluti á lægra verði en aðrir án áhættu "

Þar sem bankarnir voru félög á almennum hlutabréfamarkaði, eru svona tilboð til starfsmanna ekki  brot á lögum um markaðsmisnotkun?  Þ.e. að starfsmönnum var gert kleift að kaupa hluti á lægra verði en aðrir.  Ég hef grun um að hér í Bandaríkjunum væri þetta talið lögbrot.  Það er bankans að taka ábyrgð á eignum hluthafa og með þessu eru þeir að skekkja stöðu einstakra hluthafa gagnvart öðrum hluthöfum í bankanum.  Ef ég á hlut í fyrirtæki sem er á genginu 1.00 á sama tíma og starfsmaður fær að kaupa hlutinn á genginu 0.90 þá hefur þar með verið gengið á minn rétt sem hluthafa að mínu mati.

Kveðja,

 


mbl.is Greiði tekjuskatt af sölurétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband