30.7.2009 | 05:13
Tengdir aðilar í botnlausum fréttum
Stjórnendur Landsbankans litu á stærsta hluthafa bankans sem ótengdan aðila. Litu stjórnendur bankans einnig á sjálfa sig sem ótengda aðila? Sérkennileg afstaða og algjörlega óútskýrt hvers vegna stjórnendurnir litu á Björgólf Thor sem óskyldan aðila.
Enn og aftur eru fréttamenn ekki með rökhugsunina í lagi og fara ekki á veiðar eftir frekari skýringum. Í fréttin segir: "Fyrrverandi stjórnendur gamla Landsbankans segjast ekki hafa litið á Björgólf Thor Björgólfsson sem tengdan aðila"
Hverjum sögðu stjórnendurnir þetta? Fréttamanni? Rannsóknarnefnd? Saksóknara?
Hvaðan er þetta haft? Beint frá stjórnendum/stjórnanda? Frá öðrum fréttamanni? Áreiðanlegum heimildarmanni (hvar?)?
Það mætti gjarnan koma fram akkúrat hverjum þetta er haft eftir, þ.e.a.s. ef þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu, ákveðin stjórnandi sagði þetta, eða eitthvað annað
Hverjar voru skýringar stjórnendanna á því að þeir litu svo á að Björgólfur Thor væri EKKI tengdur aðili þó svo að hann ætti stærsta eignarhlutinn í bankanum?
Kveðja,
Litu ekki á Björgólf Thor sem tengdan aðila | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |