28.12.2015 | 19:22
Krap?
"Krapið flæddi ..."
Þegar ég var að alast upp (fyrir austan) finnst mér að það hafi verið talað um krapa í karlkyni, ekki hvorugkyni. Ég hefði því skrifað þessa fyrirsögn: "Krapinn flæddi..." Því var einnig talað um krapaflóð.
Skv. Ritmálssafni Orðabókar Háskólans:
krapi
nafnorð karlkyn
Dæmi í ritmálssafni frá 17s-20s
Heimild elsta dæmis: WandAlm , 15r
Hinsvegar man ég eftir að mamma, sem var alin upp á Hornströndum talaði stundum um "krapið" (krapann). Það er einnig að finna í Ritmálssafninu:
krap
nafnorð hvorugkyn
Dæmi í ritmálssafni frá 17m-20s
Heimild elsta dæmis: RJónGramm , 35
Mér finnst þó að 16. dæmið, sé í karlkyni en ekki hvorugkyni... Bara smá íslenskupæling
Kveðja,
![]() |
Krapið flæddi inn í þrjú herbergi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2015 | 17:42
Sækjast sér um líkir
Það kemur mér ekkert sérstaklega á óvart að Palin styðji Trump og Cruz.
Reyndar er Trump kominn í slíka stöðu að hann ræður hvort Repúblikanar hafa séns í forsetakosningunum eða ekki. Ef hann klýfur sig út með sérframboði þá er ekki séns að frambjóðandi Repúblikana nái kjöri. Ef hann klýfur sig ekki út, er líklegt að Trump sigri í forvalinu. Hinsvegar hef ég trú á að fylgi hans muni dala fram að forsetakosningunum næsta haust. Trump gerir hvað sem er fyrir athygli, eitthvað sem hefur komið honum áfram í skoðanakönnunum. Hinsvegar er vaxandi hluti Repúblikana orðinn þreyttur á skvaldrinu í Trump og vill hann út úr dæminu. Sem myndi næsta örugglega þýða að hann klýfur sig út í sérframboð. Trump hefur því sett flokkinn og fylgismenn hans milli steins og sleggju og verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr þeirri barsmíð.
Demókratar hafa sín vandamál með Hillary Clinton. Hún er sterkur stjórnmálamaður en fer of mikið sínar eigin leiðir og er mjög umdeild. Hinsvegar er hún langsterkasti frambjóðandi Demókrata, sem setur Demókrata í bobba. Verði Hillary forseti verður það aðeins til þess að gjáin milli hægri og vinstri verður dýpri og klofningur þjóðarinnar meiri. Ef svo verður er orðin alvarleg hætta á því að upp úr sjóði og það komi til vopnaðra átaka milli pólitískra fylkinga, sem getur aldrei endað öðruvísi en hörmulega fyrir þjóðina.
Kveðja,
![]() |
Sarah Palin ánægð með Trump og Cruz |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2015 | 22:51
Hryðjuverkaárásir að verða daglegt brauð
Hryðjuverk hér í Bandaríkjunum eru að verða daglegur viðburður. Þó sumir deili um hvað séu hryðjuverk og hvað ekki, þá sé ég ósköp lítinn mun á því sem skeði á miðvikudaginn og því sem skeði nýlega þegar ruglaður maður hóf skothríð og gíslatöku inn í Planned Parenthood, eða þegar 20 börn og 6 fullorðnir voru drepnir í Sandy Hook barnaskólanum árið 2012. Eða þegar Anders Breivik drap 77 manns 2011.
Sumir kenna um mikilli skotvopnaeign Bandaríkjamanna, en það skýrir ekki eitt sér þessa tilhneigingu til fjöldamorða, sem hefur sprottið upp hér undanfarin 20 ár eða svo. Hryðjuverkum er ætlað að hræða og ógna velferð fólks með ofbeldi til að ná fram einhverjum markmiðum, hvort sem þau eru pólitísk eða trúarleg eða eitthvað annað.
Undanfarna áratugi hafa hryðjuverk í hugum fólks smám saman breyst. Nú er nánast eingöngu talað um hryðjuverk (a.m.k. í þeim fjölmiðlum sem ég skoða) þegar múslimskir öfgamenn eiga í hlut. Aðrir sem framkvæma hryðjuverk eru "bara" brjálaðir einstaklingar, hvort sem þeir aðhyllast einhverja trúarskoðun eða ekki. Það var t.d. aðeins talað um pólitískt hryðjuverk Anders Breivik sem fjöldamorð, a.m.k. er það það sem ég man eftir.
Frekar napurlegar staðreyndir hvort sem menn líta á þessi fjöldamorð sem hryðjuverk eða ekki. En þetta fölnar í samanburði við meira en 16 þúsund morð og 40 þúsund sjálfsmorð, sem eru í tölfræðitöflum CDC fyrir árið 2013 (síðustu tölur held ég) http://www.cdc.gov/nchs/data/nvsr/nvsr64/nvsr64_02.pdf Það er eitthvað annað og meira að í okkar þjóðfélagi.
Kveðja,
![]() |
Hleyptu fjölmiðlum inn á heimilið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2015 | 19:24
Íslenska á undanhaldi?
Ég held að þetta sé nokkuð orðum aukið. Börn, nánast hvar sem er í heiminum, alast nú upp í ensku umhverfi, þannig að þessi hætta steðjar ekki sérstaklega að íslensku, heldur öllum tungumálum heims nema ensku. En tungumál þróast og aðlagast erlendum áhrifum. Þannig stóðst íslenskan ágætlega nokkrar aldir af dönskum áhrifum og hún hefur staðist áratugi af enskum áhrifum, þó vissulega færist þau í vöxt með aukinni notkun netsins. En jörðum ekki íslenskuna alveg strax:)
Kveðja,
![]() |
Íslensk tunga á stutt eftir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |