Traust til gjaldþrota fyrirtækja?

Maður hlýtur að spyrja sjálfin sig, hvernig banki getur borið trausts til fyrirtækis og eigenda þess sem hafa sankað að sér hundraða milljarða skuldum án þess að geta borgað?  Sem búa til eignir með því að selja sjálfum sér eigin eignir fram og til baka og veðsetja svo söluhagnaðinn fyrir nýjum skuldaævintýrum og nýrri vitleysu?  Ruglið heldur áfram á fullri ferð í vildarboði Bónus.  Hefur þjóðin ekki borgað nóg fyrir sukkið og ruglið?  Spyr sá sem ekki skilur!

Hvernig getur Nýja Kaupþing einu sinni borið það á borð fyrir almenning að þeir muni e.t.v. afskrifa þessar skuldir, að hluta eða öllu leyti?  Ef þeir gera það þá hlýtur það að vera krafa allra þeirra sem skulda bankanum að þeir afskrifi þeirra skuldir líka.  Einfalt mál. 

Ef þessir "nýju" bankar fara ekki að vinna eins og bankastofnanir en ekki útibú frá útrásarruglinu, þá fara þeir nákvæmlega sömu leið og forverar þeirra - á hausinn á kostnað þjóðarinnar.  Og hvar verða íslendingar þá staddir?  Er þetta hönnunin fyrir Hrun Íslands 2.0? 

Kveðja,

 


mbl.is 1998: Eigendur njóta trausts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinin í Times

Þar sem ekki var neinn hlekkur í fréttinni á greinina í Times, þá fór ég á google stúfana og fann þetta:

http://business.timesonline.co.uk/tol/business/industry_sectors/banking_and_finance/article6888894.ece

Það er líka önnur ný frétt á Times um "víkingana" okkar!

http://business.timesonline.co.uk/tol/business/industry_sectors/banking_and_finance/article6889146.ece

Þessi er eldri:
http://business.timesonline.co.uk/tol/business/industry_sectors/banking_and_finance/article6869775.ece

og:

http://entertainment.timesonline.co.uk/tol/arts_and_entertainment/books/book_reviews/article6866368.ece

Raunaleg lesning um "afrek" íslensku bankamannanna!¨

Kveðja


mbl.is Ásakanir um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn tími til að fara yfir svörin...

Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir alla hagsmuna aðila að ekki hafi unnist tími til vandlegrar yfirferðar á svörum til ESB hjá Bændasamtökunum eins og segir í fréttinni:  "Svörin í heild sinni hafi ekki komið til formlegrar yfirferðar hjá Bændasamtökunum, enda hafi hvorki verið tími né aðstæður til vandlegrar yfirferðar."

Sú spurning hlýtur að vakna hvort það sama hafi verið upp á teningnum hjá samtökum í fiskveiðum- og vinnslu og hjá samtökum iðnaðarins.  Mér finnst það alveg fráleitt að ESB málið sé keyrt yfir þjóðina með þessum látum.  Samkvæmt þeim könnunum sem ég hef haft fréttir af þá er alsendis óvíst hvort meirihluti þjóðarinnar stendur á bak við umsókn að ESB.  Þetta mál hefur verið keyrt af miklu afli í gegn og án þess nauðsynlega undirbúnings sem hefði átt að vera, svo sem öflugt kynningarstarf á starfsemi ESB og raunverulegri umræðu um kosti og galla aðildar.

Þar sem ég hef búið erlendis í 14 ár, þar af 3 ár í Danmörku, þá hef ég svosem ekki sérlega sterkar skoðanir á þessu máli, en það þarf að vera miklu meiri umræða og umfjöllun um þetta heldur en ég hef séð í íslenskum fjölmiðlum.  Mér finnst eins og það eigi að keyra þetta í gegn í skjóli og skugga efnahagskreppunnar.  Samkvæmt því sem ég hef lesið þá er mjög ólíklegt að Ísland geti orðið aðildarríki fyrr en eftir nokkur ár, svo mér finnst að það hefði alveg mátt taka þessu rólega og taka yfirvegaðar ákvarðanir en ekki vera að þessu fumi og fálmi sem mér finnst hafa einkennt þetta mál (og fleiri) í meðferð íslenskra stjórnvalda.

Kveðja,

 


mbl.is Bændasamtökin fóru ekki yfir svörin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérkennilegur dómur

Þessi dómur í Svíþjóð er dálítið sérstæður.  Þar sem aðeins nokkrir notendur höfðu stolið efninu þótti ekki ástæða til að það væri rannsakað frekar.  Ef um þúsundir hefði verið að ræða hefði e.t.v. eitthvað verið gert.  Sem sagt fáir þjófsnautar eru ósekir en margir gætu verið sekir.

Ég held að okkur sem fást við gerð höfundarréttarvarins efnis, svo sem hugbúnaðar og ljósmynda skipti það ósköp litlu máli hvort einn eða þúsund hafa stolið efninu.  Stolið efni er stolið efni, hversu margir sem hafa gerst sekir um það.  Það er semsagt allt í lagi ef 5 stela bíl, en ef 10 gera það, þá er það glæpur!  Eins og ég sagði, sérstæður dómur!

Kveðja,

 


mbl.is Dómi um ólöglegt niðurhal hnekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðmenn

Þetta er með sérkennilegri fréttum: 

"Eftir að hafa hitt alla átta stjórnmálaflokka Noregs komumst við að því að Norðmenn kalla Íslendinga bræður" 

Ja það er bara svona!  Það þurfti semsagt að funda með öllum stjórnmálaflokkum Noregs til að komast að þessu?  Í einfeldni minni hélt ég að þeir hefðu verið að funda með stjórnmálaflokkum Noregs til að fjalla um lán en ekki orðabókarskiling.  Ef ég man rétt eftir að búa 3 ár í Danmörku, þá kalla Skandínavar hvorir aðra bræður á tyllidögum.  Ég hef grun um að íslenska notkunin á "frændi" sé komin úr þýsku (freund: vinur).

Kveðja,


mbl.is Vildu útskýra hegðun AGS fyrir Norðmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðarverðlaun

Þessi ákvörðun Nóbelsnefndarinnar að veita Barack Obama friðarverðlaunin hefur komið verulega á óvart.  Konunni minni, sem er bandarísk og studdi Obama í forsetakosningunum á síðasta ári, varð hverft við þegar ég las þetta fyrir hana á mbl.is og spurði "For what?"  Það held ég að sé spurning sem margir spyrji sig núna og ég verð að viðurkenna að ég veit ekki alveg fyrir hvað Obama fær friðarverðlaunin. 

Hann hefur aðeins verið í um 8 mánuði í embætti forseta og tók við illa stöddu búi af fyrirvera sínum og hefur þurft að glíma við gífurlegan fjárlagahalla og uppgjör við kreppuna og um tíma var allsendins óvíst hvort það tækist. 

Hann hefur í raun lítið beitt sér á alþjóðavettvangi að öðru leyti en því að hafa breytt stefnu Bandaríkjanna í nokkrum málum sem eru mjög í brennidepli hér, þ.e.a.s. stríðinu í Írak, loftslagsmálum og svo erfiðri baráttu demókrata fyrir umbótum í heilbrigðismálum sem veitir ekki af.  Ríkisstjórn Obama hefur einnig dempað talsvert hörku fyrri ríkistjórnar í utanríkismálum sem hefur verið vel tekið af alþjóðasamfélaginu. 

Sennilega er eitthvað friðvænlegra eftir að Obama tók við völdum, en þó ég sé stuðningsmaður Obama, þá finnst mér hann eiga langt í land með að vinna sér þann heiður að hljóta friðarverðlaun Nóbels.  Ég held það séu ansi margir sem klóra skallann og horfa undrandi á þetta má og spyrja hvað Nóbelsnefndin sé að fara.

Kveðja,

 


mbl.is CNN hæðist að Noregi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugleika- og álagspróf

Mér þætti gaman að vita hvort hér er verið að framkvæma sömu stöðuleika- og álagspróf og fyrir ári síðan sem sýntu stöðu íslensku bankana sem "góða"?  Persónulega held ég að þær alþjóðlegu eftirliststofnanir og matsfyrirtæki sem áttu að sjá um að kanna raunverulega stöðu bankanna hafi látið leiðast allt of mikið af mati bankanna sjálfra en ekki séð um að gera sjálfstæð möt á bönkunum.  Ef skoðaðar eru matskýrslur Moodys á íslensku bönkunum síðustu mánuðina fyrir hrun þá kemur fram að þessar skýrslur eru enn jákvæðar og einkunnir bankanna góðar.  Hvernig gátu þessi matsfyrirtæki, sem fjárfestar og lánardrottnar bankanna fóru eftir, gert svo gróf mistök við mat á íslensku bönkunum?  Seðlabanki Íslands gerði álagspróf og stöðugleikapróf á íslensku bönkunum.  Þeir voru reyndar farnir að vara við stöðu bankanna, a.m.k. til stjórnvalda, en íslensk stjórnvöld kusu að hunsa þær aðvaranir. 

Það er vissulega tímabært að hreinsa til í bönkunum en ég held að hugarfar stórfyrirtækja og fjármagnsfyrirtækja þurfi líka að breytast.  Það tekur tíma.  Skyndigróðahugsunin sem olli þessari kreppu þarf að víkja fyrir hagsmunum til langs tíma.  Þjóðir og fyrirtæki þurfa að koma sér saman um langtíma áætlanir sem síðan er hægt að vinna eftir frekar en vera með allt niðri um sig og renna svo á afturendann í eigin úrgangi eins og Ísland er að gera. 

Kveðja,


mbl.is Tímabært að hreinsa til í bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölur á reiki

Samkvæmt tölum Árna þá er losun koltvíoxíðs á Íslandi 17 tonn á hvern íbúa.  Samkvæmt tölum frá US Department of Energy's Carbon Dioxide Information Analysis Center (CDIAC) þá var Ísland í 52 sæti árið 2006 með 7.4 tonn pr. íbúa og hafði þá rokkað frá 8,2 tonni árið 1996 niður í 7,2 tonn árið 1992.  Losunin var mest í Quatar, eða rúm 56 tonn á íbúa.  Luxemburg var hæst Evrópulanda með 24,5 tonn og Bandaríkin voru í 9 sæti með 19 tonn.

Því er að sjá að það muni meira en 10 tonnum pr. íbúa skv. tölum Árna Finnssonar og Bandaríska orkumálaráðuneytisins.  Eftir því sem ég hef fundið þá verða til um 1,5 tonn af kolvíoxíði fyrir hvert tonn af áli í bræðslu.  Það þýðir að álverið á Reyðarfirði sem dæmi losar um 550 þúsund tonn af koltvíoxíði á ári miðað við um 340 þúsund tonn af áli.  Eftir því sem kemur fram á vef Saving Iceland þá er losun miðað við að orka sé framleidd með kolum o.þ.h. um 12 tonn á hvert tonn af áli.  Til viðbótar þessu eina og hálfa tonni kemur svo losun vegna flutnings hráefna og framleiðslu og þess háttar, en mér sýnist að hvernig sem þessu dæmi er snúið þá komi það alltaf út hagkvæmara fyrir CO2 framleiðslu að framleiða ál á stöðum þar sem hægt er að fá hreina orku með vatnsafli, gufuafli, vindorku o.s.frv.

Hvort Ísland er forysturíki skal ég alveg ósagt látið, en mér sýnist að Rajendra K. Pachauri hafi alveg rétt fyrir sér þegar rætt er um hvort það sé hagkvæmara að framleiða ál á Íslandi eða þar sem orkan er framleidd með kolum eða olíu.  Ef þetta er rangt hjá mér þá vildi ég mjög gjarnan fá staðfestar tölur því til stuðnings:) 

Kveðja,


mbl.is Dró forsetinn upp glansmynd?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuldasöfnun í góðæri

Hafnarfjarðarbær er ekki einn á báti um skuldasöfnun í "góðærinu".  Eftir tölum sem ég sá nýlega þá virðist skuldasöfnun einstaklinga og fyrirtækja, að bönkunum undanskildum, hafa verið mjög mikil - skuldir frá 2002 til 2008 um það bil þrefölduðust ef ég man tölur rétt. 

Einhvernvegin hefði manni fundist eðlilegra að skuldirnar lækkuðuþegar vel áraði.  Hvernig ætla íslendingar að borga þessar skuldir?  Ekki er hægt að kenna bönkunum og útrásarvíkingunum eingöngu um óreiðu því mér sýnist að stór hluti landsmanna hafi verið í sama sukkinu og óreiðunni!  Það hefði komið sér betur nú að nota gróðann til að greiða niður skuldir og stofna ekki til nýrra neysluskulda, s.s. til bílakaupa. 

Kveðja,

 


mbl.is Lóðaskil afsökun fyrir slæmri fjárhagsstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar myndir

Fyrir þá sem hafa áhuga og eru á facebook, þá hef ég sett inn nokkrar nýjar myndir frá því í morgun:

http://www.facebook.com/home.php?ref=home#/album.php?aid=2036246&id=1106660469&ref=nf 

Ég held að allir sem eru á Facebook geti skoðað myndirnar.  Allur myndatexti er á ensku.

Kveðja,

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband