29.4.2015 | 00:20
Trúarbrögð gegn konum
Í gegnum aldirnar hefur hin kristna kirkja, eins og sú íslamska, gert hvað hún getur til að berja niður sjálfstæði kvenna til ákvarðana sem varða þeirra eigið líf og eigin líkama. Kirkjan ákvað á sínum tíma að konur væru réttdræpar fyrir galdra. Kirkjan ákvað að konur væru ekki jafn réttháar körlum. Kirkjan ákvað að konur ættu að vera undirgefnar körlum og karlaveldið skyldi blíva með góðu eða illu. Þetta er allt ógurlega miðaldalegt en það er víst hluti fólks í hinum vestræna heimi sem lifir í þeirri trú og von að sextánda öldin komi aftur. Ég vona til allra góðra vætta að þessum rugludöllum verði ekki að ósk sinni og að fólk getir haldið áfram inni framtíðina í stað þess að kveða upp drauga ömurlegrar fortíðar til þess að friðþægja fáeinum bullustrokkum.
Kveðja,
Auðmýkjandi og ekki hlutlaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2015 | 23:44
Fáránlegasta fyrirsögn í langan tíma!
Þessi fyrir sögn: "Slátrun kemur í veg fyrir dráp" hlýtur að vera sú fáránlegasta, sem ég hef séð í langan tíma! Slátrun getur aldrei komið í veg fyrir dráp, því það er jú það sem slátrun er - dráp á lifandi dýri. Ef hægt er að slátra dýrum án þess að þau séu drepin er þar með komin lausn á fæðuvanda heimsins! Bara slátra sama dýrinu aftur og aftur! Þvílíkt og annað eins!
Slátrun kemur í veg fyrir dráp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2015 | 00:08
Góðarlega???
"Yfirmaður bandaríska hersins í Evrópu segir góðarlega ógn stafa af Rússum"
Ekki veit ég hvað þetta "góðarlega" á að merkja, en hér hlýtur að vera um einhverskonar prentvillu að ræða!
Af Rússlandi stafar ógn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2014 | 16:24
Greiðslur fyrir höfundarrétt
Greiðslur fyrir höfundarrétt eru einu tekjur sem fjölmargir listamenn hafa. Ég skora því á hæstvirtan þingmann Pírata að segja sig frá þingfararkaupi og lifa án tekna í svo sem eitt ár. Ef listamenn geta lifað án þess að fá greitt fyrir, þá hlýtur þjóðin að geta notið starfskrafta þingmannsins án þess að hann fái greitt fyrir það:)
Kveðja
Það góða er að þetta mun ekki virka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2014 | 01:55
Rugl 2.0
Íslenska Ruglið er byrjað aftur, nú í útgáfu 2.0. Nú er bara spurning hvað það tekur fjármálasnillingana langan tíma til að byggja upp nýtt hrun. Lærði enginn neitt af einu versta efnahagshruni veraldar? Það virðist a.m.k. ekki vera að íslendingar hafi gert það...
Kveðja,
90% lán til bifreiðakaupa komin aftur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2014 | 14:41
Bati eða vís dauði
Ef ég skildi rétt þá var þessum litla snáða hugaður bráður dauði af heilbrigðiskerfinu í Bretlandi en er nú talinn eiga 70% lífslíkur í Tékklandi. Það er eitthvað sem ekki er alveg að ganga upp. Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu máli. Ég vona svo sannarlega að þessi strákur sigrist á krabbameininu, hvað sem öllum læknavísindum líður og geti lifað góðu lífiv:)
Telja að Ashya nái bata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.8.2014 | 02:55
Countrywide Financial ekki Countryworld
Ég vil bara benda á að fjármálafyrirtækið hét Countrywide ekki Countryworld! Fyrir 2008 lánuðu þeir nánast öllum sem vildu fá peninga til húsnæðiskaupa án tillits til eignastöðu, lausafjárstöðu eða tekna! Við vorum með lán hjá þeim sem við endurfjármögnuðum 2005 eða 2006. Við seldum húsið í September 2008 ;)
Kveðja frá Port Angeles!
Gert að greiða 16,7 milljarða dala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.6.2014 | 22:35
Hrottafenginn morðingi
Ég skil ekki alveg af hverju orðið "hrottafengins" er innan gæsalappa. Oftast eru gæsalappir notaðar svona til að gefa til kynna vafa, en mér finnst lítill vafi leika á að þessi morðingi er hrottafenginn...
Kveðja
Leita hrottafengins morðingja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.4.2014 | 04:17
Í byrjun árs 2013...
Annað hvort er hér um ára rugling að ræða og þetta hefur átt að vera 2014 eða 2015, eða þessi frétt og/eða skýrslan er eitthvað skrýtin.
EF þetta er rétt, þá var það ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem stöðvaði viðræður við EU, ekki ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Guðlaugssonar. Hvaða viðræðum við EU var þá verið að slíta síðasta sumar???
Höfðu þegar náð fram sérlausnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.1.2014 | 07:01
Íslensk vegabréf
Íslensk vegabréf eru sennilega erfiðustu pappírar að fá í heiminum! Vegabréfið mitt rann út fyrir tveimur árum og ég hef tvo kosti. Að fara til Íslands eða fara til Washington DC og mæta í sendiráðið þar snemma morgunns því þeir þurfa að vera í beinu sambandi við utanríkisráðuneytið til að geta endurnýjað bréfin. Mér skilst að það séu 3 eða 4 staðir í veröldinni þar sem hægt er að gera þetta.
Þegar ég endurnýjaði vegabréfið 2001 þá var þetta einfalt mál. Ég sendi beiðni um það í Konsúlatið í Dallas, en við bjuggum þá í San Antonio. Ég fór svo upp til Dallas og sótti vegabréfið. Konsúlatið í Seattle getur ekkert gert. Það er annað hvort Reykjavík eða DC.
Ég athugaði hvernig þetta gengur fyrir sig í nokkrum löndum, m.a. Bretlandi, Ástralíu, Kanada og hér í Bandaríkunum og að mig minnir í Noregi (man ekki alveg, gæti hafa verið Þýskaland) Í þessum löndum er bara send beiðni um endurnýjun til sendiráðs eða Konsúlats og þú færð svo vegabréfið afhent eða sent í pósti. Umsókn um vegabréf í fyrsta skipti hér er svolítið snúnari en konan mín þarf að fara niður til Olympia sem er einn og hálfur tími í bíl. Ekkert stórmál. Fyrir mig er þetta 6 tíma flug annað hvort til Reykjavíkur eða DC, með tilheyrandi kostnaði.
Vonandi er hægt að einfalda þetta rugl.
Kveðja,
Ýmsar hækkanir um áramótin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |