Eftirspurn

Það er sennilega minni eftirspurn en framboð á skoðunum Jóns, en ég held það sé nánast engin eftirspurn lengur eftir skoðunum Vigdísar!  Hinsvegar er nóg framboð, enda lítill skilningur á markaðslögmálum hjá stjórnmálamönnum yfirleitt!

En svona meðal annarra orða: hvenær ætlar Klausturdótið að axla ábyrgð og segja af sér?  Ekki það að ég hafi nokkra einustu trú á að neitt af því fólki hafi manndóm í sér til að bera ábyrgð á neinu.  Af hverju ætti borgarstjóri að vera eitthvað öðruvísi?  Sami grautur í sömu skál!

Jólakveðjur af westurströndinni!

 


mbl.is Sakar Jón Gnarr um kvenfyrirlitningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríki Íslams

Hryðjuverkasamtökin ISIS eru langt frá því búin að vera!  Þessi ákvörðun að draga herinn frá Sýrlandi er sennilega sú versta sem gerð hefur verið varðandi öryggi Bandaríkjanna síðan í aðdraganda 9/11 og á eftir að hafa slæmar afleiðingar í Miðausturlöndum.  Sérfræðingar á vegum hersins, heimavarnarráðuneytisins, CIA og fleiri stofnana í öryggismálum eru mjög uggandi yfir þessari þróun mála. 

Það sérkennilega er að þetta er nákvæmlega það sem flestir, þar á meðal Trump, gagnrýndu Obama fyrir - fálæti gagnvart framtíð Sýrlands!  Og það var réttmæti gagnrýni.  Bandaríkin héldu alltof mikið að sér höndum þegar kom að Sýrlandi.  Sennilega vegna þess að þjóðin var þreytt á tveimur stríðum í forsetatíð Bush, sem er svosem skiljanlegt.  En þetta fálæti gagnvart Sýrlandi hefur kostað gífurlegt mannfall, flóttamannastraum, sem á varla sinn líkan og hörmungar fyrir Sýrlensku þjóðina.  Þetta fálæti varð uppsprettan að ISIS.  

En Trump veit allt best og hunsar allar ráðleggingar þeirra, sem raunverulega vita eitthvað!   Með yfirvofandi lokun stofnana eins og heimavarnarráðuneytisins þá er öryggi allra borgara landsins stefnt í voða.  Allt fyrir vegg sem bara þarf stiga til að komast yfir og mun litlu, sem engu breyta.

 

Jólakveðjur að Westan!


mbl.is Sérfræðingur í málefnum Ríki íslams segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgir eða bara stikkfrí?

Málfrelsi er hornsteinn lýðræðis og ábyrgð á orðum og gjörðum er líka hornsteinn lýðræðis.  Það er ekki hægt að plokka hornsteina þjóðfélagsins út eftir behag og segja að málfrelsi sé mikilvægt, en ábyrgð sé bara upp á punt. 

Það er búið að búa til pólitískan hráskinnaleik úr þessu máli, sem hefur ekkert með pólitík að gera heldur um grundvallarvirðingu fyrir samferðamönnum sínum.  Er það til of mikils mælst að alþingismenn með sóðakjaft á almannafæri fái að bera ábyrgð á orðum sínum?  Ef þetta fólk hefði farið út í bíl og keyrt hefði það verið látið sæta ábyrgð á eigin gjörðum!  Eða hvað?  Hefði saksóknari bara litið í hina áttina?  

Kveðja


mbl.is Viðbrögðin jafn vitlaus og ummælin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sömu viðbrögð!

Ég get alveg sannfært Sigmund um að MÍN viðbrögð hefðu verið nákvæmlega þau sömu:  Afsögn er eina leiðin til þess að axla ábyrgð á viðurstyggilegri framkomu í garð umbjóðenda, samstarfsfólks og starfsfólks Alþingis.  Sigmundur er ekki maður til að taka ábyrgð á eigin gjörðum, því miður! 

Ég studdi Sigmund í Wintris málinu um árið, en ekki nokkur maður með vott af siðferðiskennd getur stutt Klausturfólkið, þó margir rembist eins og djúpan við staurinn að afsaka óafsakanlega framkomu!

Kveðja


mbl.is VG og Samfylkingin sitja á bar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gætu haft lögfræðinga...

Það hefur verið fjallað um aðkomu Indigo Partners á mnl.is eins og þetta fyrirtæki sé algjör nýgræðingur, sem hugsanlega hafi ekki kunnáttu til að ráða lögfræðinga!  Indigo á fyrir amk eitt Evrópskt flugfélag og er búið að vera í flugfjárfestingum í 16 ár.  Eigandinn er búinn að vera í flugrekstri í aldarfjórðung og hefur alveg örugglega hugsað út í skilyrði fyrir flugrekstrarleyfum í Evrópu þegar Wow var til umfjöllunar!

Í fréttum erlendra fjölmiðla, sem ég hef rekist á síðustu daga er fullyrt að Skúli Mogensen verði áfram meirihlutaeigandi í Wow.  Mér þykir líklegt að þeir hafi eitthvað fyrir sér í því og það sé ekki byggt á getgátum út í loftið eins og mest umfjöllun um Wow virðist hafa verið hjá Íslenskum fjölmiðlum undanfarna mánuði.

Kveðja.


mbl.is Indigo-menn mættir til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki komið nóg?

Einhver kallaði þetta fólk skíthæla.  Ég held það sé mildilegt samheiti yfir svona viðbjóð.   Bæði Gunnar og Sigmundur voru menn, sem ég taldi góða menn og grandvara.  Hef alltaf talið mig í kringum miðju stjórnmála og þessir menn hafa verið fulltrúar þess hluta stjórnmálarófsins.  En allt annað og viðurstyggilegra hefur komið á daginn! Viðbrögð þeirra hafa verið gersamlega fyrir neðan allar hellur, svo ekki sé meira sagt!  

Það afsakar ekki mannorðsmorð að einhver hafi tekið það upp.  Nákvæmlega ekkert afsakar óráðshjal þessa fólks um heimilisofbeldi eða fatlað fólk.  Það er ekkert annað en hreinn og klár viðbjóður.

Ég vona að það verði tekið á þessum málum af einurð og festu af Alþingi og öðrum, sem tengjast þessu.  Alþingi hefur tapað áliti á undanförnum árum og svona rugl er ekki til að bæta það!  Þetta fólk verður að sæta varanlegri ábyrgð, ekki bara slá smávegis á putta og svo er allt í lagi!  Þetta er ekki í lagi og þetta fólk er eins rúið trausti og hugsast getur!  

Kveðja.

 


mbl.is Hló að heimilisofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband