Færsluflokkur: Bloggar
4.6.2009 | 16:55
Það vantar eitthvað...
Það vantar eitthvað inn í þessa frétt. Eins og hún kemur fram á http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2009/06/04/bretar_hata_ykkur_ekki/ þá er fyrst skýring á því að þessari konu hafi brugðið í brún o.s.frv. Svo er sagt: "Myndin verður sýnd í breskum kvikmyndahúsum í byrjun næsta árs og verður líklegast seld til sjónvarpsstöðva í Nýja-Sjálandi, Hollandi og Skandinavíu." Það vantar inngang sem skýrir hvaða mynd er verið að tala um en engar upplýsingar um þessa mynd koma fram í fréttinni!
Þegar ég fer og bæti þessari bloggfærslu við þá kemur fram hér til hliðar að "Breska kvikmyndagerðarkonan Heather Millard vinnur að heimildarmynd um Ísland eftir bankahrunið. Hún segir myndina á uppbyggilegum og bjartsýnum nótum. Myndin verður sýnd í breskum kvikmyndahúsum í byrjun næsta árs og líklegast seld til sjónvarpsstöðva í Nýja-Sjálandi, Hollandi og Skandinavíu. "
Þennan inngang vantar í fréttina svo þessi "mynd" er algerlega óskilgreind. Ég hef tekið eftir þessu áður og mér virðist að það sé einhver villa í vef mbl.is þar sem frétta inngangi er sleppt. Þetta gerir sumar fréttir hálf afkáralegar þar sem það vantar skýringu á því hvað er verið að tala um!
Kveðja
![]() |
Bretar hata ykkur ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.4.2009 | 00:50
Merkingarmunur
Fyrirsögnin er "Tap Alcoa meira en talið var" en í fréttinni er sagt "rekstrartap... hefði verði meira ... en búist var við" Fyrirsögnin gefur í skyn að um reikningsskekkju hafi verið að ræða, en fréttin gefur í skyn að um vanáætlun á tapi í efnahagsáætlun fyrir fyrsta ársjórðung hafi verið að ræða. Þetta eru ekki sömu hlutirnir og fréttamenn þurfa að gera greinarmun á milli þess sem er (talið var vera) og þess sem var áætlað (búist var við)
Kveðja,
![]() |
Tap Alcoa meira en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.4.2009 | 16:00
Óskiljanlegur fréttaflutningur
Ég á afskaplega bágt með að skilja þennan fréttaflutning. Það er verið að tala um sérstaka rannsókn á hugsanlega stærsta og víðtækasta sakamáli á Íslandi og þó víðar væri leitað. Þar sem um er að ræða hugsanlegar upphæðir sem leika á þúsundum milljarða króna og það er verið að hamast út af smáaurum til að rannsaka þessi ósköp! Mér sýnist þessar 67 milljónir vera eitthvað um 1/10.000 af þeirri upphæð sem ég sá einhversstaðar um það hvað IceSave kostaði eða kemur til með að kosta skattgreiðendur á Íslandi, í Bretlandi og í Hollandi.
Fólk hefur krafist rannsóknar á hvað í ósköpunum skeði á Íslandi síðasta áratug. Fólk hefur talað um að engu megi til spara til að komast til botns í hvað fór svo herfilega úrskeiðis. En þegar loksins einhver skriður kemst á þessa rannsókn þá hlaupa allir up til handa og fóta og kvarta undan því að það þurfi að borga þeim sem sjá um þessa rannsókn. Vilja íslendingar virkilega bíða eftir því að þeir fái einhverskonar ölumusu frá erlendum sérfræðingum og þurfi ekki að borga? Ég bara skil ekki alveg...
Kveðja frá Port Angeles, Washington.
![]() |
Tengiliður Evu Joly kostar 6,7 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2009 | 23:42
Gott framtak
Þetta er gott framtak hjá Obama. Reyndar hefur verið talsvert fjallað um þetta hér í Bandríkjunum og Kanada undanfarið og svo virðist sem fólk hugsi sér að nýta lóðir sínar og garða til að rækta matjurtir. Við prófuðum þetta þegar við bjuggum í San Antonio, en það var of heit og þurrt þar til að það væri nokkur leið að láta neitt vaxa.
Hér í Port Angeles búum við svo vel að hafa nokkuð stóran bakgarð sem hallar mót suðri og hér er veðurfar svipað og á Austfjörðunum, nema bara svolítið hlýrra. Við höfum fullan hug á að setja niður svolítið af kartöflum og gulrótum og eins jarðaber og ýmislegt annað núna þegar er vorið er á næsta leiti. Ekki veit ég hvort maður spara mikið á þessu en það að geta fengið nýtt grænmeti og ávexti beint úr garðinum er svo langt ofan við þetta rusl sem maður er að kaupa úti í búð. Nú er bara að verja þetta fyrir árans moldvörpunum sem eru á góðri leið með að gera garðinn að svissneskum osti!!!
![]() |
Obama fær matjurtagarð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2009 | 23:31
Dagblöð á netinu
Ég hef fylgst dálítið með þessari umræðu hjá CBC útvarpinu í British Columbia hérna hinumegin við Puget sundið. Margir fjölmiðlamenn eru nokkuð uggandi yfir þeirri þróun að flytja fréttamennsku frá dagblöðum yfir á netið. Orsökin er einkum sú að netmiðlar geta ekki greitt sömu laun og haldið úti sama mannskap í fréttamennsku og dagblöðin. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að netmiðlarnir eru venjulega ekki í áskrift heldur afla tekna með auglýsingum. Megninu af auglýsingum á netinu er dreift í gegnum leitarvélar á borð við google og yahoo sem eru orðnar nokkuð fastar í sessi.
Þessi þróun dagblaða frá prentmiðlum til netmiðla er að margra mati of sein á ferðinni og þessir miðlar hafa látið hjá líða um árabil að notfæra sér netið til áskriftar en í stað þess einblínt um of á auglýsingatekjur á netinu. Nú er svo komið að leitarvélarnar og önnur vefsvæði sem gera út á vefauglýsingar eru farnar að taka verulegan hlut af heildar auglýsingatekjum á markaðnum og prentmiðlarnir hafa ekki fylgst nægilega vel með þeirri þróun og ekki aðlagað sig að breyttum aðstæðum. Þeir hafi því misst af lestinni og það verði erfitt fyrir þá að ná sér á strik fjárhagslega eftir að þeir breyta um miðil.
Fréttamenn eru margir hverjir uggandi um sinn hag og telja að netfréttamiðlar geti ekki haldið uppi sömu gæðum í fréttamennsku og prentmiðlarnir hafa gert. Þetta muni koma niður á fréttaflutningi í heild, en prentmiðlar hafa löngum þótt flytja ýtarlegri fréttir heldur en ljósvakamiðlar, þar sem það sem ég kalla fréttasölumennska lendir oft ofan á. Það verður áhugavert að fylgjast með hvernig þessu vindur fram næstu árin.
![]() |
Bandarísk blöð skera niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2009 | 17:47
Offituvandamál
Meðan 8 af hverjum 10 bandaríkjamönnum eldri en 25 ára eru of þungir (overweight, obese, morbidly obese), þá finnst manni svona lagað bara vera algjört rugl! Sérstaklega nú þegar augu almennings eru að opnast fyrir hversu gríðarlegt heilbrigðisvandamál þetta er og á eftir að verða á næstu árum og áratugum.
Hér (http://www.obesityinamerica.org/statistics/index.cfm) má finna ýmsar upplýsingar um offituvandamál í Bandaríkjunum. Það skal tekið fram að þetta er langt frá því að vera eitthver sér-bandarískt vandmál. Þetta er stórt vandamál í flestum vestrænum ríkjum og eru mörg ríki Evrópu litlir eftirbátar Bandaríkjanna í þessum efnum.
![]() |
Kaloríukjarnorkusprengja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.3.2009 | 00:50
Icelandair fljúga til Seattle í sumar
25.3.2009 | 05:15
Fjármögnun Novators til kaupa á Actavis
Svo virðist sem að kaup Novators á Actavis fyrir tæpum tveimur árum uppá um 5.6 milljarða Evra hafi að miklu leiti verið fjármögnuð af Deutsche Bank in Þýskalandi. Skv. frétt Reuters eins og hún er birt á Forbes.com (http://www.forbes.com/feeds/afx/2009/03/24/afx6205722.html) þá mun Deutsche Bank hafa fjármagnað um 4 milljarða Evra af þessum kaupum.
Nú virðist vera sem að væntanlegt söluverð Actavis geri ekki mikið meira en fjármagna skuldir Novators af kaupunum gagnvart Deutsche Bank - spurningin er því sú hvernig Novator mun reiða af ef lítill sem enginn söluhagnaður verður af Actavis. Á endanum spyr maður hvort þessi milljarður dollara sem Björgólfur Thor á eftir verður étinn upp í þessu dæmi! Spyr sá sem ekki veit???
![]() |
Verðmat á Actavis lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |