Færsluflokkur: Bloggar
7.7.2009 | 21:34
Bankakaup
Það er eitthvað sem bara ekki passar í þessu púsluspili! Björgólfsfeðgar fengu 6 milljarða lán frá Kaupþingi til að kaupa 45,8% hlut í Landsbankanum 2003. Svo sem ekkert óeðlilegt við það miðað við allt annað, en það sem stendur uppúr þessu er að á þessum 6 árum hefur þeim ekki tekist að greiða þessa skuld upp eftir allt góðærið, gróðann og hundrað milljarðana sem eignahlutur þeirra í Landsbankanum var metinn á áður en allt fór yfirum, ef ég man þessar tölur rétt!
Á endanum snýr þetta þannig við mér að þeir fengu lán, sem þeir borguðu ekki, til að kaupa banka sem fór svo ævintýralega yfirum, ásamt hinum tveimur, að allt fjármálakerfi vesturlanda nötraði og skalf stafna á milli mánuðum saman. Þetta dæmi altsaman gengur bara enganvegin upp fyrir mér, hvernig sem ég sný þessu.
Borgarastyrjöld? Yrði ekki hissa!
Kveðja,
![]() |
Varar við borgarastyrjöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2009 | 19:34
Aðilar ekki sammála um dómstólaleið
Í frétt á ruv.is (http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item288630/) er sagt að Svavar Gestson formaður íslensku IceSave samninganefndarinnar hafi sagt "...að dómstólaleiðin sé ekki tæk í málinu þar sem báðir málsaðilar séu ekki sammála um að fara með málið fyrir dóm."
Nú þekki ég akkúrat ekki neitt til alþjóðalaga og alþjóðasamninga en ég hef aldrei heyrt um að ekki sé hægt að fara fyrir dómstóla með mál vegna þess að deiluaðilar eru ekki sammála um að fara með málið fyrir dóm. Mér virðist hinsvegar það vera venjan að mál fari fyrir dómstóla vegna þess að deiluaðilar geta ekki komist að samkomulagi.
Ég hef plægt aðeins í gegnum IceSave samninginn eins og hann var birtur á dögunum og eitt sérstaklega sem stingur í augu er að þessi samningur er milli Íslands annars vegar og stjórnvalda í Bretlandi og Hollandi hinsvegar. Hann er EKKI við íslensk stjórnvöld, heldur Ísland. Ísland er hinsvegar landið sem íslendingar búa á og þar sem íslensk stjórnvöld starfa. Samningurinn er ekki við Bretland og Holland, heldur bresk og hollensk stjórnvöld.
IceSave samningurinn er slæmur gjörningur, en hinsvegar er vandséð hvaða aðrar leiðir eru færar í stöðunni. Íslensk stjórnvöld, hvar í flokki sem þau hafa staðið undanfarin 10 ár, eru samábyrg fyrir þessum endalausu klúðrum sem orsökuðu hrun bankanna. Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið brugðust eftirlitsskyldu sinni. Ég held að enginn, ekki einu sinni Davið Oddson, geti verið ósammála því. Seðlabankinn og Davíð gerðu athugasemdir við stöðu bankanna í óbirtum plöggum, en opinberlega var allt í góðu lagi. Stjórnvöld gerðu akkúrat ekki neitt til að bregðast við þeim óveðursskýjum sem hrönnuðust upp á alla vegu. Að mínu mati hafa stjórnvöld ENN lítið sem ekkert gert til þess að bregðast við þessu.
Núverandi ríkisstjórn gat komið fram skilyrðum fyrir IceSave og sett pressu á Breta og Hollendinga. Þeir þurftu ekki að lúffa gersamlega eins og þeir hafa gert. Eitt af þeim skilyrðum hlaut að vera að málshöfðanir gegn Tryggingarsjóði og íslenskum stjórnvöldum vegna IceSave yrðu ekki mögulegar, hvorki af hálfu viðkomandi ríkja eða einstaklinga eða fyrirtækja í þessum löndum. Ef ég skil IceSave samninginn rétt þá er Tryggingasjóður skuldbundinn til að greiða allt að 20,887 evrur og restin fellur á stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi. Ef einstaklingar og fyrirtæki geta síðan hafið lögsókn gegn íslenskum stjórnvöldum vegna skulda gömlu bankanna, þá er þessi samningur algerlega gagnslaus.
Það er sárt að horfa upp á ástandið á Íslandi séð utan frá. Menn hljóta að spyrja sig hvernig í ósköpunum þetta gat gerst. Ég hef ekki svar við því en ég er sannfærður um að þegar farið verður að grafa í þessi endalausu krosseignatengsl fyrirtækja og banka á Íslandi þá hlýtur að koma að því að það þarf að moka flórinn. Það er ekki eðlilegt eins og í dæminu um Sterling að fyrirtæki sem er rekið með tapi og rambar á barmi gjaldþrots í fleiri ár gangi kaupum og sölum og HÆKKI í verði úr 4 í 20 milljarða á 2 eða 3 árum. Ég fæ það dæmi engan vegin til að ganga upp!
Svo hrundi öll þessi spilaborg, því það var allt sem hún var. Það voru engar raunverulegar eignir á bak við stóran hluta viðskipta á Íslandi síðastliðin 10 ár - þetta voru peningar á pappír sem ekkert gildi höfðu og var haldið í verði með endalausum kaupum á hlutabréfum sem voru fjármögnum með lánum tryggðum í hlutabréfum sem höfðu enn ekki hækkað í verði en var fyrirséð að myndu hækka vegna eftirspurnar þegar lánsféð var notað til að kaupa bréf. Þetta var, vitandi eða óvitandi, byggt upp eins og hver annar pýramídi og eins og Egypsku bræður þeirra var hann byggður á sandi.
Einhverntíma árið 2007 fór svo að flæða að og þá byrjuðu hornsteinarnir að grotna. Síðasta sumar komust menn svo að því að þetta var ekki pýramídi heldur sandkastali og háflóð var á næsta leiti. Í Október brotnuðu svo öldurnar og þá varð ekkert eftir! Nú eru öll þessi pappírsfyrirtæki farin yfirum og eftir liggur slóð upp á fleiri hundruð milljarða í tapaðar skuldir því það var engin trygging fyrir þessum skuldum sem bjó til stærstan hluta af eignasafni gömlu bankanna. Gömlu bankarnir tæmdir og ekkert stendur eftir. Eimskipafélag Íslands, óskabarn þjóðarinnar, rambar á barmi gjaldþrots og óskaði eftir nauðasamningum fyrir nokkrum dögum síðan.
Slæmt mál, hvernig sem á það er litið. En íslendingar eru sterk þjóð sem hefur gengið í gegnum erfiða tíma áður og ég efast ekki um að okkur tekst að komast út úr þessu. En það verður á brattan að sækja og þjóðin þarf að standa saman þó erfitt sé. Öll sú pólitík sem hefur litað þetta mál frá upphafi dregur aðeins úr mikilvægi þess. Þetta er ekki pólitísk mál, þetta er afbrotamál og þar eru réttarfarshagsmunir og sjálfstæði þjóðarinnar í veði.
Kveðja frá Port Angeles
3.7.2009 | 22:49
Að berja höfuðið í steininn
Það virðist sem það eina sem ég blogga um hérna er slæmt málfar á mbl.is. Ég er svosem ekkert málfarsséní, en þegar villurnar beinlínis hrópa á mann af skjánum þá get ég bara ekki orða bundist!
Í þessari frétt segir:
"...í stað þess að berja höfuðið í steininn"
Ég veit ekki af hvaða tungumáli þessi frétt var þýdd, en svona orðalag á ekki heima í íslensku! Það er talað um að berja höfðinu við steininn, ekki í steininn. Þar fyrir utan ætti að nota "höfðinu" ekki "höfuðið" með "í steininn"
Mbl.is getur gert betur en þetta!
Kveðja
![]() |
Palin hættir sem ríkisstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2009 | 18:15
Pappírshækkanir
Hér einu sinni var talað um "hækkun í hafi" þegar Boxít til íslenska álversins hækkað skyndilega á leið sinni frá Ástralíu. Mér sýnist að í þessu Sterling dæmi sé e.t.v. hægt að tala um "hækkun á flugi"
Hér er ekki að sjá að neinskonar röksemdir séu á baki þess að Sterling hækkaði í verði. Félagið virðist hafa verið rekið sem tapi og ekkert sem ég hef séð bendir til að þetta fyriræki hefði átt að hækka í verði, heldur frekar lækka ef eitthvað er. NTH er búið til af eigendum Sterling og síðan selja þeir Sterling til NTH fyrir 20 þúsund milljónir en ekkert bendir til að félagið hafi verið meira virði en þegar Fons keypti það á 4 þúsund milljónir nokkrum árum áður. Þessir 12 þúsund milljónir eru einfaldlega peningar á pappír sem hafa aldrei verið til. Hinsvegar virðist em 17 þúsund milljónir í reiðufé skipti um hendur án þess að neitt komi í staðin nema hækkun Sterling "á flugi". Mér sýnist á öllu að hér sé þörf ástæða til rannsóknar á því hvort um peningaþvætti hafi verið að ræða.
Kveðja
![]() |
Ákvæði féll niður við kaup NTH á Sterling |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2009 | 00:44
Orða vant...
Í þessari frétt segir: "Þessi mynd var tekin þegar." Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég tek eftir því að botninn vantar í setningar á mbl.is. Mbl.is getur gert betur:)
Kveðja,
![]() |
Ella lífgar uppá Brákarsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2009 | 22:17
Sævar???
Þetta er í ananð skiptið í dag sem ég finn að fréttum á mbl.is Ekki vegna þeirra skoðana eða frétta sem eru settar fram, heldur vegna þess að það vantar búta í fréttirnar sem gagnlegt eða amk. gaman væri að hafa með.
Í þessari frétt er ritað: "Sævar segir sérfræðingana..."
Ekkert út á það að setja, en það er ekkert meira um hvaða Sævar er talað við! Mbl.is getur gert betur en þetta.
Ég er lítið kunnugur staðháttum í Geithúsárgilinu en hef þó gengið þar upp með gamla skálanum sem þar var og var notaður m.a. sem heyhlaða. Rámar í að þarna hafi verið ýmislegt af gömlu stríðsáradóti þarna út um allt svo það kemur ekki á óvart að vafasamir hlutir frá þeim tíma finnist þarna.
Kveðja,
![]() |
Búið að eyða hættulegri sprengju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.6.2009 | 18:08
Hauslaus frétt
Enn einu sinni vantar haus á þessa frétt sem setur fréttina á samhengi. Fréttin á mbl.is byrjar þannig:
"Nefndin hefur nú tekið formlegar skýrslur af alls 26 einstaklingum..."
Hausinn sem birtist þegar blogg er skrifað vantar. Þessi haus byrjar þannig:
"Rannsóknarnefnd Alþingis hefur tekið formlegar skýrslur af 26 einstaklingum..."
Eins og fréttin birtist á mbl.is þá kemur hvergi fram hvaða nefnd þetta er, bara "nefndin" eða "rannsóknarnefndin" Þetta gerir það að verkum að fréttin er hálf samhengislaus og missir marks. Maður getur ekki annað gert en klóra skallan og reyna að finna út hvað í ósköpunum er verið að fjalla um. Mbl.is getur gert betur en þetta!
Kveðja,
![]() |
Skýrslur af 26 einstaklingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2009 | 18:20
Frá Íran til Íraks
"Tugir fórust í sprengjuárás í Íran" segir í fyrirsögn en í textanum kemur fram að þetta skeði í Bagdad í Írak! Ég veit að það er auðvelt að rugla þessum tveimur löndum saman enda með sameiginleg landamæri og mjög svipuð nöfn en það er samt ekki afsökun fyrir slælegum prófarkalestri. Vona að þetta verði leiðrétt:)
Kveðja frá Port Angles.
![]() |
Tugir fórust í sprengjuárás í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2009 | 22:33
Brottrekstur eða uppsagnir
Fyrir mér er talsverður merkingarmunur á því að vera rekinn og að vera sagt upp störfum. Það fyrra stafar venjulega af einhverjum afglöpum í starfi og er oftast neikvætt fyrir viðkomandi starfsmann. Það síðara tengist oftar niðurskurði í rekstri og oftar en ekki fylgja starfsmanninum jákvæð ummæli atvinnurekanda.
![]() |
AMR rekur 1.600 starfsmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.6.2009 | 16:43
Réttritunarkunnátta óskast!
Það er hálf skelfilegt að lesa þessa frétt:
"var lögbanninum aflétt"
"farið yfir málið í gærkvöldi af lögbanninu aflétt."
"fari í eina sæng."
"geri Chrysler kleift að halda áfram st"
Ég verð að viðurkenna að eftir 13 ára búsetu erlendis er íslenskan farin að ryðga svolítið en ég man ekki eftir þessu orðatiltæki að "fara í eina sæng" Endinn á greininni vantar hreinlega.
Hvað söluna sjálfa varðar held ég að hún sé og verði af hinu góða. Bílaframleiðendur hér í Bandaríkjunum eru í miklum kröggum. Atvinnuleysi hefur aukist mikið og ef tugþúsundir bættust við frá bílaiðnaðinum þá væri það svo sannarlega ekki til bóta.
Kveðja frá Port Angeles, Washington.
![]() |
Hæstiréttur heimilar sölu á Chrysler |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |