16.5.2010 | 03:04
Skilanefnd Landsbankans, banka allra landsmanna...
Mér þykir það furðu sæta að skilanefnd Landsbankans, sem hér áður fyrr auglýsti sig sem banka allra landsmanna, skyldi ekki geta fundið neinn hentugri fulltrúa til að sitja í stjórn Iceland heldur en Jón Ásgeir Jóhannesson. Bankinn er í eigu ríkisins ef ég þekki rétt, eða a.m.k. var hann í eigu ríkisins, og það mætti ætla að það hefði verið leitað að hæfum mönnum með reynslu í viðskiptum. Hvorugt hefur Jón Ásgeir, eða aðrir í Baugs&Bónus apparatinu sýnt þar sem þeim hefur tekist að keyra hvert fyrirtækið á eftir öðru í svimandi gjaldþrot undanfarin ár.
Af einhverjum ástæðum, mér (og sjálfsagt fleiri) algjörlega óskiljanlegum, er þessu mönnum treyst. Það virðist sem að þeir sem geta sett upp stærstu gjaldþrotin séu taldir stærstir og þeir sem sýna mesta tapið séu mestir. Þetta stangast virkilega á við þann kapítalisma sem ræður hér í Bandaríkjunum og maður veltir fyrir sér hvaða efnahagsformúlur þessir menn á Íslandi hafa lært. Ekki kemur hún frá gömlu kommúnistunum, því jafnvel þeir voru mun betur að sér heldur en þetta! En það er augljóst að hjá þessum mönnum er tap eftirsóknarvert, gjaldþrot óumflýjanleg og sviksemi telst til dyggða.
Maður furðar sig lítið á að það skuli vera komið eins og er fyrir Íslandi með svona hundalógik í farteskinu!
Kveðja,
Segir að Jón Ásgeir muni hætta í stjórn Iceland | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2010 | 05:09
Stefna Skilanefndar Glitnis
Ég hef setið við og pælt í gegnum alla stefnu Skilanefndar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri og 6 öðrum ásamt PricewaterhouseCoopers. Þetta er ógnvekjandi lesning og hausinn á mér er að springa eftir þetta.
Í 296. málsgrein í 12. dómskröfu segir "Plaintiffs have no adequate remedy at law", sem ég leyfi mér að þýða sem: "Stefndu hafa enga vörn að lögum". Mér finnst þessi setning sýna málið í hnotskurn. Þessir menn stálu bankanum og öllu steini léttara í þeim fyrirtækjum sem þeir komu nálægt.
Eyðimerkurdrengirnir skildu eftir sig sviðna jörð hvar sem þeir fóru um. Og það var ekki eitthvað sem skeði fyrir slysni, þetta var skipulagt og stjórnað af Jóni Ásgeir sem keypti menn til þjónustu ef þeir voru óþekkir.
Hundruð milljarða króna var veitt framhjá innra eftirliti bankans og þeim var stundum ekki sagt fyrr en eftir nokkrar vikur um lán frá bankanum sem voru svo stór að bankinn riðaði á barmi gjaldþrots. Það var "lánað" út og suður og aldrei borgað neitt. Þannig var bankinn þurrausinn hvað eftir annað til að pumpa upp "veldi" Jóns sem var alltaf á fallandi fæti hversu miklum fjármunum sem Glitnir var látinn blæða.
Hvar ætli þessir fjármunir hafi endað? Ekki enduðu þeir í þeim fyrirtækjum sem eyðimerkurdrengirnir ráku, svo mikið er víst því þau voru öll að fara eða farin yfir um þegar bankinn tæmdist loks endanlega. Þessir menn "keyptu" Ísland en það var bara allt út á krít!
Kveðja,
13.5.2010 | 14:12
Birt eða ekki birt
Ég sé ekkert í frétt Guardian sem segir að Jóni hafi verið birtar stefnan! Hinsvegar telst stefnan birt hérna í Bandaríkjunum þegar hún hefur verið skráð og er þar með almennt og aðgengilegt skjal. Þetta kom m.a. fram á fréttamannafundi skilanefndar í gær. Það er alla vega ekkert sagt um að Jóni hafi verið birt stefnan í New York enda mun Jón vera í Bretlandi!
Kveðja,
Guardian: Búið að birta stefnuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2010 | 21:01
Afburðar klúðurslega orðað
Í fréttinni segir: "Tók hann fram að ráðstöfunin myndi gilda eins lengi og þurfa þyrfti. "
Það sem ég hnýt um er "þurfa þyrfti" Hér í gamla daga var sagt eins og "þurfa þykir" og þetta ætti því að vera "Tók hann fram að ráðstöfunin myndi gilda eins lengi og þurfa þætti." mbl.is getur gert betur en þetta:)
Kveðja,
Askan hindrar flug í Þýskalandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2010 | 05:51
Er einhver hissa?
Ég skil það vel að kröfuhafar í BYR hafi verið lítið hrifnir af því að stofnfjáreigendur ættu að fá meira en þeir og að eigendur víkjandi skuldabréfa ættu að fá eitthvað. Það er ástæða fyrir því að þetta eru víkjandi bréf!
Mér sýnist að hér sé verið að reyna að hagræða og hygla einhverjum sem ekki eiga rétt á því á kostnað þeirra sem eiga rétt. Hverjir skyldu eiga þessar eignir sem ekki mega tapast?
Kveðja,
Erlendir kröfuhafar Byrs gengu fúlir af fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2010 | 05:46
GM í kröppum dansi
Hér í Bandaríkjunum er mikill fjöldi fólks sem lítur bíla frá General Motors miklu hornauga vegna þess að ríkið tók yfir hluta félagsins og GM fékk milljarða dollara til að rétta sig við, eftir gjaldþrot og mikla endurskipulagningu. Það er allsendis óvíst hvort GM hefur möguleika á að rétta úr kútnum og villandi auglýsingar eiga örugglega ekki eftir að hjálpa þeim!
Kveðja,
Villandi auglýsingar GM harðlega gagnrýndar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2010 | 05:43
Óreiða í Grikkland
Ég heyrði viðtal á CBC núna seinni partinn í dag við hagfræðing sem starfaði hjá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum, en er nú prófessor í hagfræði við háskóla í Kanada, um ástandið í Grikklandi. Þar kom m.a. fram að skuldasöfnun hefur verið gífurleg undanfarin ár. Skattheimta er afburða slök og mikið um undanskot og jafnvel mútur í sambandi við skatta. M.a. kom fram að í tilraun til þess að leggja skatt á hina efnameiri var lagður skattur á sundlaugar í íbúðahverfum. 350 skiluðu skatti meðan á sama tíma sýndu loftmyndir að yfir 17 þúsund sundlaugar voru í íbúðahverfum (held þetta hafi verið í Aþenu) Líka var bent á að á Grikklandi væru afskaplega fáir sem teldu fram háar tekjur, þ.e. yfir milljón dollara, á meðan í öllum öðrum löndum Evrópu er hlutfallið margfalt hærra en í Grikklandi. Þá kom líka fram að eftirlaunaaldur opinberra starfsmanna (civil servants) er 57 ár og þeir fá greidd laun fyrir 14 mánuði á ári!
Það verður fróðlegt að sjá hvernig rætist úr þessu, en Grikkir eru að mörgu leyti í verri málum en Íslendingar að mér sýnist. Ég held að Íslendingar geti unnið sig út úr þessum vanda, en ég er ekki svo viss um Grikki.
Kveðja,
Grikkland stendur nú „á barmi hyldýpisins“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.5.2010 | 05:52
Glæpur gegn Íslandi
Það kom svo sem ekki margt á óvart í viðtalinu við William Black. Hann staðfesti það sem mig hefur grunað lengi að bankakaupin voru til þess gerð að stunda glæpastarfsemi. Eigendur og stjórnendur bankanna ákváðu að stela öllu sem þeir mögulega gátu. Hafa sennilega ekki haldið að þeir kæmust upp með það lengi, en eins og Madoff þá komust þeir upp með þetta lengur en nokkurn hefði órað fyrir.
Hinsvegar þá þurfa menn að staldra við og hugsa út í þá staðreynd að efekki hefði komið til alþjóðlegrar fjármálakreppu sem varð nánast að algjörum frostavetri eftir fall Lehman Brothers, þá hefðu Landsbankinn, Kaupþing og Glitnir getað haldið áfram á þeirri braut sem þeir voru á og hefðu þá sennilega getað komist upp með að stunda glæpastarfsemi sína í 2 - 3 ár í viðbót! Íslendingar myndu þá þurfa að horfast í augu við hrun á næsta ári með Icesave skuldir sem næmu nokkur þúsund milljörðum! Hrunið hefði kostað tugi þúsunda milljarða og Íslenska ríkið og flest fyrirtæki á Íslandi hefðu lent í algjöru þroti á nokkrum vikum og mánuðum og afleiðingarnar hefðu orðið algjör landflótti enda hefðu lífskjör á Íslandi hrokkið niður á svipað stig og meðal fátækustu ríkja heims á mjög stuttum tíma. Það er hugsanlegt að erlend ríki hefðu gripið í taumana og fryst Ísland úti en útkoman hefði orðið sú sama - algjört og viðvarandi hrun á Íslandi án þess að litlum líkum á endurreisn.
Þetta er það dæmi sem eigendur og stjórnendur bankanna voru á góðri leið með að setja Íslendinga í. Þetta er niðurstaðan sem orðið hefði ef þetta lið hefði fengið að halda dampi og klára dæmið. Þetta lið hefði skilið Ísland eftir sem efnahagslega eyðimörk án möguleika á endurreisn. Þannig fannst þessu fólki að væri við hæfi að fara með Ísland og íslenska þjóð. Stjórnmálamenn í öllum flokkum spiluðu með og það getur enginn skorast undan ábyrgð í þessu dæmi. Það sköruðu allir eld að sínum kökum og hver sem var svo djarfur að mótmæla og segja að eitthvað væri að var hafður að fífli.
Hrunið var ekki bara glæpur gegn lögum, réttarvitund og siðgæðisvitund, heldur gegn hinni íslensku þjóð. Þessir menn einsettu sér að knésetja þjóðina efnahagslega til þess eins að hagnast sjálfir og þeim var nákvæmlega sama hvað yrði um restina af fólkinu í landinu. Það mátti éta það sem úti fraus fyrir þeim.
Allt of margir hafa reynt að gera hrunið að pólitísku máli og kenna þessum flokki og hinum um. Vissulega voru ákvarðanir um að selja bankana pólitískar og sjálfsagt verið pólitík á bak við hverjum var selt. En það má ekki láta pólitík lita þann veruleika að hér er um eitt stærsta glæpamál í sögu viðskiptasvika í heiminum.
Ég get ekki ímyndað mér hvernig er að lifa í gegnum þetta á Íslandi. Það hefur verið erfitt að fylgjast með því sem hefur verið að gerast á Íslandi úr fjarlægð. Það verður æ erfiðara eftir því sem frá líður og meira fréttist af hvað var í gangi. Maður sér hversu gífurleg og útbreidd spilling var til staðar og samsömun með glæpaöflunum var mikil og útbreidd. 1996/7 árum varð Albanía illilega fyrir barðinu á pýramída svikum sem fjármálastofnanir í landinu stunduðu (meiri upplýsingar er m.a. að finna á Wikipedia, sjá: http://en.wikipedia.org/wiki/Ponzi_scheme) Hundruð milljóna dollara töpuðust. Hér má lesa grein um þetta á vef Alþjóða gjaldeyrissjóðsins: http://www.imf.org/external/pubs/ft/fandd/2000/03/jarvis.htm og mig langar til að vitna hér aðeins í þessa grein:
"The proliferation of schemes had baleful effects. First, more depositors were drawn in. Although VEFA had the largest liabilities, it had only 85,000 depositors. Xhafferi and Populli between them attracted nearly 2 million depositorsin a country with a population of 3.5 millionwithin a few months. Second, the investment funds felt pressured to compete and began to offer higher interest rates on deposits. In July, Kamberi raised its monthly interest rate to 10 percent. In September, Populli began offering more than 30 percent a month. In November, Xhafferi offered to treble depositors' money in three months; Sude responded with an offer to double principal in two months. By November, the face value of the schemes' liabilities totaled $1.2 billion. Albanians sold their houses to invest in the schemes; farmers sold their livestock. The mood is vividly captured by a resident who said that, in the fall of 1996, Tirana smelled and sounded like a slaughterhouse, as farmers drove their animals to market to invest the proceeds in the pyramid schemes.
Throughout the year, the government was a passive spectator to the unfolding crisis. Although the enormity of the problem became clear when the Bank of Albania discovered that VEFA's deposits in the banking system were equivalent to $120 million (5 percent of GDP), and despite repeated warnings from the IMF and the World Bank, the finance ministry did not warn the public about the schemes until October. Even then, however, it drew a false and misleading distinction between companies with real investments, which were believed to be solvent, and "pure pyramid schemes." When it was suggested that some companies might be surviving by laundering money, President Sali Berisha came to their defense."
Þó svo að ástandið hafi verið annað í Albaníu heldur en á Íslandi, þá er svo marg svipað að það stingur í augu! Smá sýnishorn:
"Xhafferi and Populli between them attracted nearly 2 million depositorsin a country with a population of 3.5 millionwithin a few months. "
Icesave! Átti að "bjarga" Landsbankanum, en var bara útfærsla á pýramídanum.
"By November, the face value of the schemes' liabilities totaled $1.2 billion. Albanians sold their houses to invest in the schemes; farmers sold their livestock."
Tug- eða hundruðmilljarða lán til að kaupa hlutabréf í íslensku bönkunum með veðum í bréfunum sjálfum! Engin verðmæti á bak við neitt af þessu.
"the government was a passive spectator to the unfolding crisis"
Sama skeði á Íslandi!
"When it was suggested that some companies might be surviving by laundering money, President Sali Berisha came to their defense."
Geir og Ingibjörg ásamt öðrum!
Þannig hefur sagan í Albaníu (og víðar þar sem pýramída svik hafa komið upp) endurtekið sig á Íslandi. Sagan sem endurtók sig hjá Bernard Madoff sem stal tugum milljarða dollara og var því enn afkastameiri en þeir Íslensku. Munurinn er auðvitað sá að Madoff er í fangelsi! Hann var handtekinn 11. Desember 2008 og var dæmdur til 150 ára fangelsisvistar 29. Júní 2009.
Ef Ísland á að lifa af og ef Íslendingar eiga að geta látið gróa um heilt, þá verður að taka á þessum mönnum sem stóðu á bak við stærsta bankarán sögunnar og því fyrr því betra. Það verður að saksækja þessa menn og það verður að grafa upp allt sem hægt er að grafa upp um glæpaviðleitni þeirra. Að mínu mati ættu engir af eigendum eða stjórnendum gömlu bankanna að fá að koma nálægt fyrirtækjarekstri aftur og algjörlega bannað að koma nálægt fjármálafyrirtækjum af neinu tagi.
Það verður að draga þessa menn til ábyrgðar og það verður að draga stjórnmálamenn til ábyrgðar, ekki bara fyrir pólitísku afglöpin sem þeir borga fyrir á kjördag, heldur fyrir fjármálaleg afglöp og glæpsamlegt athæfi, eða glæpsamlega vanrækslu með dómum. Það hlýtur að vera krafa allra Íslendinga að það verði farið af stað með þessi mál eins fljótt og auðið er. Það kemur betur og betur í ljós með hverjum degi sem líður hversu hrikaleg svik voru framin af bönkunum. Þetta var ekkert ógát. Þetta var ekkert sem var ytri aðstæðum að kenna - það komst upp um þetta vegna ytri aðstæðna, en þær höfðu engin áhrif á þá braut sem bankarnir voru á. Þetta voru skipulögð svik eigenda og stjórnenda með fyrirfram vitaða útkomu sem gat orðið til þess hreinlega að koma Íslandi og Íslendingum fyrir kattarnef, en þessum mönnum stóð algjörlega á sama! Það er hreinlega það sem er nú að koma skýrast fram í þessu máli og það er eitthvað sem mér finnst alveg óskaplega ógeðfellt.
Kveðja,
Black: Bankarnir sekir um glæpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.5.2010 | 15:09
Katla
Það er venjulega vel upplýst fólk sem ferðast á vegum 60 minutes enda þátturinn vinsæll fréttaskýringaþáttur. Katla kemur því alveg örugglega upp. Ætla menn á Íslandi þegja Kötlu í hel eða ætla menn að segja eins og er? Ef menn segja rétt frá þá hlýtur að verða að koma í veg fyrir að þetta fólk frá 60 minutes komist til að blaðra um það í erlendum fjölmiðlum, ekki satt??? Áfram ruglið!
Kveðja,
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.4.2010 | 23:04
Peningar fyrir Jón Ásgeir en ekki Gæsluna
Einhverjir höfðu efni á að lána Jóni Ásgeiri tæpan hálfan milljarð þó hann eigi ekki bót fyrir botninn á sér. En það er ekki hægt að gera gæsluna út almennilega til stuðnings við þá sem raunverulega afla gjaldeyris fyrir þjóðarbúið! Hvers hefur Jón Ásgeir aflað fyrir þjóðarbúið undanfarið? Spyr sá sem ekki veit!
Kveðja,
Skipstjórum hrýs hugur við úthafinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |