16.12.2018 | 16:18
Sömu viðbrögð!
Ég get alveg sannfært Sigmund um að MÍN viðbrögð hefðu verið nákvæmlega þau sömu: Afsögn er eina leiðin til þess að axla ábyrgð á viðurstyggilegri framkomu í garð umbjóðenda, samstarfsfólks og starfsfólks Alþingis. Sigmundur er ekki maður til að taka ábyrgð á eigin gjörðum, því miður!
Ég studdi Sigmund í Wintris málinu um árið, en ekki nokkur maður með vott af siðferðiskennd getur stutt Klausturfólkið, þó margir rembist eins og djúpan við staurinn að afsaka óafsakanlega framkomu!
Kveðja
VG og Samfylkingin sitja á bar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2018 | 17:10
Gætu haft lögfræðinga...
Það hefur verið fjallað um aðkomu Indigo Partners á mnl.is eins og þetta fyrirtæki sé algjör nýgræðingur, sem hugsanlega hafi ekki kunnáttu til að ráða lögfræðinga! Indigo á fyrir amk eitt Evrópskt flugfélag og er búið að vera í flugfjárfestingum í 16 ár. Eigandinn er búinn að vera í flugrekstri í aldarfjórðung og hefur alveg örugglega hugsað út í skilyrði fyrir flugrekstrarleyfum í Evrópu þegar Wow var til umfjöllunar!
Í fréttum erlendra fjölmiðla, sem ég hef rekist á síðustu daga er fullyrt að Skúli Mogensen verði áfram meirihlutaeigandi í Wow. Mér þykir líklegt að þeir hafi eitthvað fyrir sér í því og það sé ekki byggt á getgátum út í loftið eins og mest umfjöllun um Wow virðist hafa verið hjá Íslenskum fjölmiðlum undanfarna mánuði.
Kveðja.
Indigo-menn mættir til landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2018 | 20:04
Er ekki komið nóg?
Einhver kallaði þetta fólk skíthæla. Ég held það sé mildilegt samheiti yfir svona viðbjóð. Bæði Gunnar og Sigmundur voru menn, sem ég taldi góða menn og grandvara. Hef alltaf talið mig í kringum miðju stjórnmála og þessir menn hafa verið fulltrúar þess hluta stjórnmálarófsins. En allt annað og viðurstyggilegra hefur komið á daginn! Viðbrögð þeirra hafa verið gersamlega fyrir neðan allar hellur, svo ekki sé meira sagt!
Það afsakar ekki mannorðsmorð að einhver hafi tekið það upp. Nákvæmlega ekkert afsakar óráðshjal þessa fólks um heimilisofbeldi eða fatlað fólk. Það er ekkert annað en hreinn og klár viðbjóður.
Ég vona að það verði tekið á þessum málum af einurð og festu af Alþingi og öðrum, sem tengjast þessu. Alþingi hefur tapað áliti á undanförnum árum og svona rugl er ekki til að bæta það! Þetta fólk verður að sæta varanlegri ábyrgð, ekki bara slá smávegis á putta og svo er allt í lagi! Þetta er ekki í lagi og þetta fólk er eins rúið trausti og hugsast getur!
Kveðja.
Hló að heimilisofbeldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2018 | 21:58
Aðrir gera þetta líka!
Það er aumt að lesa óafsakanir Sigmundar. Hann skilur bara alls ekki punktinn, heldur kemur með réttlætingar! Þetta stóð of lengi. Aðrir segja enn verra. Gerendunum líður illa! Þetta eru réttlætingar siðblindra einstaklinga, sem geta ekki skilið hvað þeir gerðu rangt! Þetta hefur gerst oft áður en þeir gerðu ekkert. Ef þeim líður svona illa núna, en ekki nógu illa þá til að gera eitthvað, þá er eina ástæðan fyrir því að þeim líður illa núna sú að það komst upp um ræflana! Hverskonar framkoma er þetta? Heldur hann að allir séu fábjánar? Ég hélt að Sigmundur væri ærlegur maður, en sé nú að sú skoðun var alröng!
Þetta fólk á að sjá sóma sinn í að segja af sér og hverfa alfarið af opinberum vetfangi, það sem þau eiga ólifað. Kannski það yrði hvítir til varnaðar fyrir aðra! Ef þau gera það ekki á að reka þau úr pólitík og banna þeim að taka neinskonar störf á opinberum vetfangi. Ef lagabreytingar þarf, þá breyta lögunum!
Kveðja,
Hefði átt að stöðva samsætið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2018 | 17:49
Afsögn!
Afsökunarbeiðnir, sem hafa meiningu og sýna iðrun viðkomandi vegna gjörða sinna eru góðra gjalda verðar. En þetta mál verður bara ekki afsakað! Þetta fólk á að sjá sóma sinn í því að segja umsvifalaust af sér þingmennsku og ekki koma nálægt störfum fyrir hið opinbera það sem eftir er! Þetta er ekkert annað en sandkassalið, með skítakjaft um kollega sína þegar viðkomandi getur engum vörnum við komið. Eins auvirðilegt og hugsast getur!
Kveðja,
Ekki ætlun okkar að meiða neinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2018 | 17:19
Segi af sér með skömm
Það virðist vera kjarni af sandkassaliði á Alþingi, sem er á svipuðu þroskastigi og Donald Trump, svona í kringum fjögurra ára. Samlíkingin er reyndar móðgun við 4ra ára!
Þetta sandkassalið á að segja af sér þingmennsku með skömm. Hvar er þetta fólk eiginlega alið upp? Ekki hjá ærlegu fólki, svo mikið er víst!
Svona framkoma eins og hefur verið sagt frá í gær og í dag er gersamlega ólíðandi og óalandi. Burt með þetta lið!
Kveðja
Segir ummælin vera hatursorðræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.11.2018 | 16:27
Láta vita á bitcoinabuse.com!
Það þarf umsvifalaust að láta vita af svona á verkum eins og bitcoinabuse.com! Það á ekki að láta þennan skríl komast upp með að fjárkúga fólk. Ég skil heldur ekki af hverju þetta er ekki kært? Það kemur sennilega ekkert út úr því, en það er amk táknrænt!
Kveðja,
Reyndu að kúga Pál Stefánsson | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2018 | 22:14
Allir tapa
Það tapa allir á þessu viðskiptastríði og þeir sem mestu tapa eru Bandarískur almenningur og Bandarískur iðnaður. Héðan frá Port Angeles eru fluttar milljónir trjábola á hverjum mánuði til úrvinnslu í Kína. Þessi útflutningur er einn af grunnstoðum atvinnulífsins hér. Ef hann dettur uppfyrir missa nokkur hundruð manns vinnuna. Í 20 þúsund manna bæ, þá er það mikið mál að halda viðskiptum við Kína í góðu horfi.
Þessi fíflalæti í kexinu í Hvíta húsinu eiga eftir að hafa mikil og neikvæð áhrif á efnahag Bandaríkjanna á komandi árum. Kínverjar hafa þegar beint veigamiklum viðskiptum með landbúnaðarvörur frá Bandaríkjunum til Rússlands og annarra landa í Asíu og Evrópu.
Kveðja,
Viðskiptadeilan magnast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.7.2018 | 18:29
Stórhættulegt frelsi
Það virðist sem að þingmenn á hægri vængnum séu óstjórnlega hræddir við konubrjóst. Að maður tali nú ekki um geirvörtur, sem mætti halda að væru verkfæri djöfulsins, enda um það bil það eina, sem alls ekki má sjást á almannafæri hér í Bandaríkjunum.
Þetta rugl gengur svo langt að samfélagsmiðlar eins og Facebook, Instagram, Twitter og fleiri, sem leyfa myndbirtingu þurfa að hafa þúsundir fólks í fullri vinnu til að finna geirvörtur og stoppa viðkomandi áður en stórhætta skapast. Eins hafa myndir af listaverkum orðið fyrir barðinu á geirvörtulöggunni og orðið að lúta í lægra haldið gegn "frelsi" löggjafans.
Auðvitað er þetta allt byggt á einhverju trúarrugli og ofstækismenn berja Biblíuna í takt, sem einhverskonar röksemd fyrir allskonar boðum og bönnum, sem eiga lítið erindi í nútíma þjóðfélag.
Breytingar ganga hægt og vafalaust breytist þetta viðhorf einhverntíma, en það er alltaf jafn hlægilegt að sjá "fullorðna menn" verða skíthrædda ef þeir sjá konubrjóst!
Kveðja að westan!
Löglegt að gefa brjóst alls staðar í Bandaríkjunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.7.2018 | 20:21
Kostnaður viðskiptastríðsins
Þetta er kostnaður viðskiptastríðs Bandaríkjanna. Einfeldningar töldu að Kína og önnur ríki, myndu bara lúffa með það sama og Trump yrði krýndur kóngur, en svo fór ekki. Kostnaðurinn við vitleysuna lendir á skattborgurum og Bandarískum fyrirtækjum. Þetta vissu allir, sem vita vildu. En auðvitað er þetta ekki tollaárás Bandaríkjanna að kenna, heldur vörn þeirra sem ráðist var á. Þetta er bara byrjunin!
Kveðja að vestan.
12 milljarðar í stuðning til bænda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |