Færsluflokkur: Bloggar
9.9.2009 | 16:11
Ekki alveg rétt farið með
Í þessari frétt er ekki farið rétt með skilgreiningu á "Subprime Loans" þegar sagt er: "Hann segir að það sem hafi ruggað bátnum nú voru viðskipti með áhættusöm húsnæðislán (e. sub-prime mortgages). Fasteignalán sem voru veitt fólki sem hafði einhvern tíma lent á vanskilaskrá."
Subprime loans (http://en.wikipedia.org/wiki/Subprime_lending) eru einfaldlega lán með meiri áhættu en prime loans. Það þýðir ekki að þeir sem borga þau séu eða hafi verið á vanskila skrá. Hér í Bandaríkjunum má segja að allir séu á vanskilaskrá, en það er notað einskonar punktakerfi sem kallast credit score (FICO score - http://en.wikipedia.org/wiki/FICO_score). Því hærra sem það er, því betri kjör er hægt að fá. Punktarnir eru reiknaðir af vanskilum, en einnig er tekið inn í dæmið hve reglulega er greitt, ef greitt er eftir eindaga, heildarskuldir, o.s.frv. Skuldir geta ekki verið á vanskilaskrá lengur en 7 ár, þá falla þær af vanskilalistanum (þó held ég að sumar skuldir fyrnist ekki, ekki alveg viss um það) Skv. Wallstreet Journal, höfðu um 60% þeirra sem fengu subprime lán árið 2006 átt að eiga möguleika á því að fá venjuleg lán.
Það er hinsvegar rétt að þetta olli því að fólk fékk lán sem það gat ekki staðið í skilum með. Þetta olli gífurlegri eftirspurn eftir húsnæði hér í Bandaríkjunum og verð á húsnæði fór upp úr öllu valdi. T.d. var varla hægt að kaupa hænsnakofa í Kaliforníu fyrir minna en milljón dollara! Þetta olli því líka að húsnæðislán hækkuðu og svo þegar fólk komst í vandræði með að borga og annað hvort seldi húsin eða bankarnir yfirtóku þau, þá snerist þessi uppsveifla mjög hratt í niðursveiflu. Húsnæðislánabankar Bandaríkjanna, Fannie Mae og Freddie Mac komust í þrot en þessi tvö fyrirtæki voru með um helming húsnæðislána í landinu að verðmæti um 5.100 milljarða dollara ($5.1 trillion) Bandaríkjastjórn varð að yfirtaka þau til að halda þeim gangandi. Bankarnir höfðu selt og keypt vafninga með þessum undirmálspappírum, og önnur fyrirtæki, svo sem AIG tryggingafélgaið fór að selja greiðslutryggingar á þessa vafninga. Þegar þessir vafningar fóru bókstaflega að flettast í sundur stóð AIG frammi fyrir því að vera krafið tum hundruð milljarða dollara í tryggingabætur frá bönkunum en AIG hafði lítið fjármagn á bak við þessar tryggingar. Eftirmaður Alan Greenspan, Ben Bernanke, áttaði sig á því hvað var að ske og Seðlabanki Bandaríkjanna greip inn í og Seðlabankinn veiti hátt í tvö hundruð milljörðum dollara inn í fyrirtækið til að koma í veg fyrir að það yrði gjaldþrota. Seðlabankinn óttaðist að ef AIG yrði gjaldþrota myndi nánast allt bankakerfi Bandaríkjanna fylgja á eftir! Bandaríkjastjórn og seðlabankinn vörðu hátt í þúsund milljörðum dollara til að koma í veg fyrir algjört hrun og þeim virðist hafa tekist það.
Kveðja frá Port Angeles
![]() |
Kreppan örugglega ekki sú síðasta segir Greenspan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2009 | 20:27
Siðferðisbrestur
Ég verð að viðurkenna að ég stend agndofa í svona máli. Prestur faðmar ungling og allt verður vitlaust. Eru íslendingar orðnir svo siðferðiskertir upp til hópa að nálægð fólks sé talin glæpur? Ég man eftir þegar allt ætlaði vitlaust að verða út af séra Ólafi Skúlasyni útaf svipuðum atburðum. Ég kynntist séra Ólafi lítilsháttar við mjög erfiðar aðstæður fyrir tæpum 30 árum þegar tveir bræður mínir létust af slysförum með 6 vikna millibili og amma okkar lést daginn sem eldri bróðir minn var kistulagður. Ég man enn vel eftir styrkum handaböndum og faðmlögum séra Ólafs, raunsæjum huggunarorðum og hlýju viðmóti á þessum ömurlegu tímum. Ég þekki séra Gunnar ekki neitt og hef aldrei haft samskipti við hann. En ég hef þekkt aðra presta svo sem séra Davíð Baldursson sem jarðsetti foreldra mína. Þar mætti ég svipuðu viðmóti og hlýju og hjá séra Ólafi. ÉG hef lært að meta þeirra starf mikils, þó ég sé ekki sérlega trúaður maður.
Kveðja frá Port Angeles,
![]() |
Siðferðisbrot en ekki agabrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.9.2009 | 17:36
"Fólki skorið"
Of mikið copy/paste hjá mbl. "Fólk er skorið"
mbl.is getur gert betur:)
Kveðja
![]() |
Er lausnin fólgin í fasteignafélögum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2009 | 19:59
Rannsókn
Fyrir þá sem hafa áhuga þá fann ég greinina um rannsóknina í British Medical Journal. Hún er endurgjaldslaus svo hver sem er getur lesið hana hér: http://www.bmj.com/cgi/content/full/339/sep03_2/b3292
Eftir að hafa pælt í gegnum hana fann ég að hér er um að ræða ummál hægra læris, mælt neðan við þjóhnapp. Eftir að hafa slegið á þetta máli þá er ég bara á nokkuð góðu róli eða rétt um 62cm:)
Kveðja,
![]() |
Hættulegt að vera með mjó læri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2009 | 16:20
Leiðinda suð!
Þetta er ekki gott mál fyrir börn! Ég hef verið með tinnitus í rétt rúm 10 ár og þetta getur verið afskaplega truflandi og dregur úr einbeitingu. Krakkar sem fá þetta ung eiga á hættu að ná ekki sama árangri í skóla og krakkar sem ekki eru með tinnitus. Ástæðan fyrir tinnitus er sú, eftir því sem heyrnalæknir í Danmörku sagði mér, að nemar í innra eyranu sem túlka breytingar í innra eyranu og senda þau sem hljóð til taugakerfisins hætta að nema hljóð vegna sífelldrar áreitni. Eftir nokkurn tíma án þess að heyra neitt fara taugarnar að búa til hljóð sjálfar og úr verður hátíðni hljóð sem sveiflast til, nóg til þess að það er afskaplega erfitt að útiloka það. Ég vann á dráttarvélum í sveitinni í mörg ár og eins í skipum og öðrum stöðum þar sem hávaði var oft mikill og langvarandi.
Kveðja,
![]() |
Börn fá eyrnasuð af mp3-spilurum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.8.2009 | 00:44
Bankar fullir af peningum
Í þessari frétt á RUV (http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item296131/) er fjallað um vanda bankanna til að finna trausta og góð lántakendur og þar er sagt meðal annars:
"Féð safnast fyrir í bönkunum sem hafa meðal annars brugðist við með því að lækka innlánsvexti."
Lækkun innlánsvaxta er þá væntanlega til þess að draga úr innlánum. En einhvern vegin finnst mér að ef það þarf að koma þess fé í útlán þá lægi beinast við að lækka útlánsvexti og þar með gera þetta fé aðgengilegt fyrirtækjum og einstaklingum sem gætu notað fjármagnið til uppbyggingar. Lækkun útlánsvaxta myndi einnig draga úr greiðslubyrgði heimila og fyrirtækja sem eru að kikna undan lánum. Í staðin bregðast bankarnir við með að reyna að minnka innstreymi fjár með því að lækka innlánsvexti. Nú viðurkenni ég fúslega að ég er ófróður mjög um bankaviðskipti en mér finnst þetta einhvernvegin ekki passa saman.
Kveðja,
27.8.2009 | 01:34
Fullur eða ófullur Sigmundur...
Mér finnst þetta sérkennileg frétt og umræðan um hana enn skrýtnari. Ég horfði á megnið af ræðu Sigmundar og fannst hún nokkuð góð og get ekki sagt að eftir hana hafi ég getað séð vín á manninum. Ég sá á einu bloggi að Sigmundur var sagður hafa verið sauðdrukkinn. Ekki gat ég séð að hann slagaði á leið í eða úr ræðustól, né heldur gat ég heyrt að hann væri þvoglumæltur eða að hann röflaði sérstaklega mikið miðað við að hann er jú þingmaður og röfl er þeirra starf. Ég get svosem ekki sagt að ég fylgi Sigmundi í pólitík, en mér fannst hann far vel fram í þessari ræðu. Mér finnst sjálfsagt að eftir þetta verði þingmenn látnir blása áður en þeir fá að fara í ræðustól og þá kemur sjálfsagt í ljós að þeir neyta aldrei áfengis.
Eini þingmaðurinn sem ég hefði alltaf treyst til þess að mæta algjörlega bláedrú í Alþingi var fyrrum sveitungi minn og skólastjóri, Helgi Seljan, sem sat þó nokkur ár á þingi fyrir Alþýðubandalagið - enda hvítþvegin bindindismaður! Mér heyrist vera nokkurt brothljóð í þessari frétt og bloggum henni tengd þegar menn kasta nú grjóti í glerhúsinu.
Kveðja,
![]() |
Fékk sér léttvín með mat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2009 | 06:45
Brotalamir
Hvernig geta fyrirtæki sem eru óvirk og EKKI í rekstri fengið lán? Og ekki bara eitthvað smáræði heldur yfir eitt þúsund milljarða króna! Samkvæmt gengi í gær, 19 Ágúst, þá eru þúsund milljarðar 7,737 milljarðar bandaríkjadollara og skipt á þessi 14.912 óvirk fyrirtæki þá jafngildir þetta US$518.880 eða 67.060.085 krónum á hvert einasta af þessum fyrirtækjum.
Hvernig í ósköpunum eiga þessi fyrirtæki, sem eru óvirk og ekki í rekstri og þar af leiðandi ekki með tekjur greitt af þessum lánum? Hvernig í ósköpunum hefur bankakerfið orðið þannig að fyrirtæki sem er ógerlegt að greiða skuldir sínar getur safnað meira en hálfri milljón dollara í skuldir án þess að neinn hafi tekið eftir?
Ég get rétt ímyndað mér hvernig einstaklingi væri tekið ef hann kæmi inn í banka hér í Bandaríkjunum og bæði um hálfa milljón og léti þess jafnframt getið að hann ætti engar eignir og hefði engar tekjur. Ég veit hvernig þetta var á Íslandi og einstaklingi sem hefði reynt þetta hefði umsvifalaust hent út úr bankanum!
Þetta bara er ekki heilbrigt og ekki heil brú í þessu rugli!
Kveðja,
![]() |
Skulduðu yfir þúsund milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 23:05
Góð grein með smá hjálp
Ég rak mig í að þýðandi greinarinnar notar orðið "myrkur" sem þýðingu fyrir murky. Betri þýðing væri "gruggugt" samanber "murky water" sem er notað um gruggugt vatn.
Að öðru leyti en það þá kemur svosem ekkert á óvart í þessari grein. Það hefur verið auðséð um langt skeið að eigendur bankanna lánuðu sjálfum sér og fyrirtækum í þeirra eign til þess að knýja upp hlutabréfaverð bæði í bönkunum og öðrum fyrirtækjum í þeirra eigu.
Kveðja,
![]() |
Telegraph: Ekkert venjulegt hrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 14:40
Nokkrir með stöðu grunaðs...
Þetta er afskaplega amböguleg fyrirsögn og frétt. "Nokkrir með stöðu grunaðs manns..." Þessi ambaga að vera með "stöðu grunaðs manns" er að mínu mati hreint bull og ætti ekki að sjást. Er bara einn maður með stöðu grunaðs manns? Færi ekki betur að tala um "réttarstöðu grunaðra" eða "stöðu grunaðra manna". "Nokkrir" bendir til að það hafi verið fleiri en einn en samt er eintala hengd við þetta. Ef einhver er með réttarstöðu grunaðs manns þá þýðir það að hann sé grunaður um eitthvað og liggi undir grun um að hafa gert eitthvað af sér. Hvernig væri:
"Grunaðir yfirheyrðir hjá Sjóvá
Yfirheyrslur eru hafnar hjá embætti sérstaks saksóknara yfir mönnum sem grunaðir eru um umboðssvik"
mbl.is getur gert betur en þetta:)
Kveðja,
![]() |
Nokkrir með stöðu grunaðs hjá Sjóvá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |