Færsluflokkur: Bloggar

Amerísk lús...

Það er allt svo dýrt í Kaliforníu;)  

Dóttir okkar, sem nú er 14 ára, fékk lús tvisvar eða þrisvar eftir að við fluttum til Washington.  Hún er með ofboðslega mikið þykkt fínt hár!  Lúsaþvotturinn var 2-3 klukkutíma vinna við að þvo hárið, kemba, greiða, kemba og þvo aftur.  Mikið af tárum líka því hún var með eindæmum hársár þessi elska alveg eins og pabbinn;)  

En það þurfti ekki nein vottorð og ekkert vesen.  Við keyptum sjampó í Walgreens, minnir að það hafi kostað 60 dollara settið sem kom með sjampói og einhverju öðru efni til að bera í hárið og lúsakamb.  Þegar þetta var þá var hún sennilega í 3. bekk, gæti hafa verið 4.

Í fyrsta skipið hafði hún verið að kvarta um að sig klæjaði og við bara rákum hana til að þvo hárið betur.  En svo eitt kvöldið þegar hún var að greiða í gegnum flókann þá datt eitthvað úr hárinu í vaskinn og hún sá að þetta var padda.  Hún var lítið hrifin af því og heimtaði að við skoðuðum hana og við nánari skoðun kom í ljós að stelpugreyið var morandi í lús og nit út um allt:(  Allt sett á fullt á nóinu, skólinn látinn vita, rúmföt og föt meðhöndluð (man ekki hvað við gerðum, en frúin fann einhver ráð á netinu til að sótthreinsa þetta) og svo var hárið meðhöndlað.  Þá var hún með sítt, ljóst hár, en eftir þetta og allt táraflóðið við að greiða fram úr þessu með lúsakamb, þá ákvað hún að styttra hár væri mun æskilegra ef þessi ófögnuður kæmi aftur!  

Hún fékk lús aftur eftir að hún stakk sér niður í skólanum en þegar hún kvartaði um að hana klæjaði var stækkunarglerið umsvifalaust tekið fram og leitað að nit.  Það var erfitt að sjá lýs í þessum hárflóka hennar, en nitina var auðvelt að sjá.  Síðast var það í 4. bekk og hún hefur ekki þurft að eiga við þetta síðan.  

Við höfum hinsvegar þurft að berjast við kattafló, sem er skaðræðiskvikindi, sérstaklega þar sem hún er handviss um að bloggari sé hin besti blóðgjafi og er með ofnæmi fyrir flóabiti!  Mannalús er kannski dýr, en kattaflóin er síst ódýrari!

Kveðjur frá lúslausu heimili í Port Angeles!


mbl.is Fékk lús rétt eftir þrítugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarskrárbundið trúfrelsi

Í Stjórnarskrá Bandaríkjanna segir ekkert um trú eða trúleysi forseta.  Önnur grein stjórnarskrárinnar, önnur málsgrein gerir grein fyrir því hverjir eigi rétt á að sækjast eftir kjöri forseta:  

"No Person except a natural born Citizen, or a Citizen of the United States, at the time of the Adoption of this Constitution, shall be eligible to the Office of President; neither shall any person be eligible to that Office who shall not have attained to the Age of thirty five Years, and been fourteen Years a Resident within the United States.

Trípólí samningurinn frá 1797 sagði að "As the Government of the United States of America is not, in any sense, founded on the Christian religion; as it has in itself no character of enmity against the laws, religion, or tranquility, of Mussulmen [Muslims]; and as the said States never entered into any war or act of hostility against any Mahometan [Mohammedan] nation, it is declared by the parties that no pretext arising from religious opinions shall ever produce an interruption of the harmony existing between the two countries."

Það kemur mér ekkert sérlega á óvart að Ben Carson þekki ekki vel til grunnlaga Bandaríkjanna.  Hann er frábær læknir, en það gerir menn ekki að sérfræðingum, né hæfum til að gegna embætti forseta!

Kveðja


mbl.is Vilja ekki múslíma í Hvíta húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þumalskrúfa Ísraels

Það er sérkennilegt að fylgjast með þessu máli héðan að utan.  Ef eitthvað sýnir þá yfirgengilegu þumalskrúfu sem Ísraelsmenn hafa á vesturlöndum þá eru það viðbrögðin við þessari ályktun smábæjar norður í Ballarhafi.  Áður en fólk fær hland fyrir hjartað og æpir "Gyðingahatari" þá vil ég segja að tveir bestu vinir mínir eru Gyðingar.  Annar uppalinn í Þýskalandi, "within smelling distance of Auschwitz" eins og hann segir - hinn uppalinn í Mexíkó og Texas og bjó í Ísrael árum saman.  

Þetta hefur ekkert með Gyðinga að gera, ekki nokkurn skapaðan hlut!  Þetta hefur að gera með smáríki sem hefur þvílíkt hreðjatak á vesturlöndum að það er orðið yfirgengilegt og vesturlönd syngja saman í sópran hvaða rugl sem Ísrael gefur út!  Er það eðlilegt?  Hver voru viðbrögð heimsins þegar Ísland (ásamt fleiri þjóðum) setti viðskiptabann á Rússa?  Steinhljóð!  En þegar Reykjavíkurborg samþykkir að kaupa ekki inn frá Ísrael, sem skiptir hvorugan aðila nokkru einasta máli, verður allt vitlaust.  

En Ísraelar hafa komist upp með að halda þessum hreðjatökum á vesturlöndum áratugum saman.  Þeir hafa komist upp með hvað sem er vegna þess að landar mínir hér í Bandaríkjunum hafa ekki haft bein í nefinu til að standa upp í hárinu á þeim, sama hvaða mannréttindabrot Ísraelar fremja og hversu illa sem stefna þeirra kemur okkur.  Vesturlönd eru með þvílíka sektarkennd gagnvart Ísrael að ég held það skipti ekki máli þó Ísrael eyddi hálfa Evrópu í kjarnorkuárás, þeim væri fyrirgefið um leið!  Þeim væri bara klappað á bakið og allt í góðu og sennilega spurðir hvort þeir vilji ekki bara eyða restinni!  Miðað við það sem maður hef heyrt af núverandi stjórnvöldum Ísraels, þá væri þeim til alls trúandi.  

Svona samband er ekki heilbrigt, hvort sem er milli ríkja, hópa eða einstaklinga og getur aldrei endað vel.  Vonandi geta vesturlönd og Ísrael komið á betra jafnvægi í sambandi þeirra í framtíðinni, en eins og staðan er núna, virðist að það verði ekki alveg í bráð.

Kveðja


mbl.is Hefur haft víðtækar afleiðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar bílinn?

Ég get nú ekki betur séð en að bílinn vanti alveg á þessari mynd!  A.m.k. sést ekki vottur af skugga af honum og bílinn þyrfti að vera mjög lágur til þess að ekki sæist örla fyrir honum upp úr fellihýsinu...  Kannski hangir þetta aftan í sportbíl úr gleri...

Kveðja,


mbl.is Svona á ekki að vera með fellihýsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankamusteri allra landsmanna

Ef fyrirtæki í eigu ríkisins hefur efni á því að leggja út 8 milljarða fyrir húsnæði undir banka á sama tíma og sjúkrahús landsmanna eru í drepandi fjársvelti finnst mér að hér hafi kulnað síðasta stráið í þeim illgresisakri sem kallast siðferði bankamanna á Íslandi.  Var það nú ærið bágborið fyrir, en nú tekur tappann úr!  

Þetta er ekki bara móðgun við þá sem enn finnst þeir þurfa að versla við þennan banka, heldur er þetta móðgun við alla landsmenn sem eiga þetta apparat!  Þetta er kannski löglegt en siðlaust er það, ekki spurning!

Kveðja


mbl.is Móðgun við viðskiptavini bankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talnaglöggan???

" Ísland hefði þurft að greiða ákveðið hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu sinni, 0,127%, í björg­un­ar­pakk­ana tvo sem Grikk­land hef­ur þegar fengið. Það þýddi að Ísland væri búið að greiða um 36 millj­arða til Grikk­lands."

Hver maður, sem getur lagt smaan og dregið frá, sér um leið og hann lítur þessar tölur augum að þær ganga ekki upp! 

Ef 36 milljarðar eru 0.127% af vergum þjóðartekjum, þá eru vergar þjóðartekjur íslendinga um 28 þúsund milljarðar!!!  Skv. Hagstofu Íslands voru vergar þjóðartekjur Íslands árið 2014 tæpir 2000 milljarðar, eða 1.993 milljarðar (sjá http://www.hagstofa.is/Pages/1374)  0.127% af því eru rétt rúmur 2,5 milljaðrar, ekki 36 milljarðar!!!

Fyrir þá sem nenna hugarreikningu á einfaldri nálgun, þá eru 0.127 um það bil 1/8 úr prósenti.  Til þess að ná einu prósenti þyrfti því að margfalda 36 með 8.  Segjum 35*8 til að rúnna þetta af og við fáum 70*4, 140*2 eða 280.  Sem sagt 1 prósent er um 280 milljarðar.  Margföldum það með 10 og við fáum 2.800 milljarða sem væru 10% og enn margföldum við með 10 og fáum 28.000 milljarða, sem væru þá 100%

Ef þessi maður var "talnaglöggur" þá má Guð hjálpa íslendingum!!!  Smáskekkjur eru fyrirgefanlegar.  Fjórtánföldun vergra þjóðartekna kemur ekki frá talnaglöggum manni, það er alveg á hreinu!

Kveðja


mbl.is Hefði reynst Íslandi dýrt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiturlyf?

Í fyrri frétt mbl.is var sagt að Cosby hefði gefið umræddri konu eina og hálfa töflu af Benadryl.  Benadryl, http://www.drugs.com/benadryl.html, er vinsælt anti-histamín, sem er notað við allskonar ofnæmi og er hægt að kaupa í hvaða verslun sem er, sem selur lyf.  Ef ég man rétt er venjulegur dagskammtur 1-3 töflur.  Ég hef notað þetta mikið í gegnum árin því það hefur minni róandi áhrif heldur en önnur anti-histamín lyf sem eru á opnum markaði hér í Bandaríkjunum.  Það hefur vissulega mismunandi áhrif á fólk og ég býst við að það sé hægt að taka of stóran skammt eins og af öðrum lyfjum, en að kalla Benadryl eiturlyf finnst mér nú svolítið langt gengið.  

Kveðja


mbl.is Felur ekki lengur sannleikann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki 80 milljónir til Kim

Leikurinn Hollywood, sem Kim Kardashian hafði höndi í bagga með er seldur af Glu Mobile, sem er stórt leikja fyrirtæki og sérhæfir sig í leyjum fyrir iOS og Android síma og spjaldtölvur.

Þó leikurinn seljist fyrir 80 milljónir króna á dag þá fer því fjarri að það séu tekjur Kim af þessum leik.  Samningur Kim við Glu Mobile mun kveða á 45% hlut af nettó hagnaði af sölu á leiknum, samkvæmt viðskiptaslúðurblöðum, en það hefur ekki verið gefið upp.  Þá munu fyrirtæki í eigyu Kim fá eignahluta í Glu.  

Allt talið held ég að það sé alveg örugglega hægt að helminga þessa tölu, sennilega talsvert meira.  Ekki það að það væri alveg ágætt að vera með 40 milljónir í tekjur á dag :)

Kveðja


mbl.is Svona varð Kim Kardashian rík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrifa þessa frétt aftur!

Fréttamanni tekst illa upp í þessari frétt og ætti að íhuga að skrifa hana aftur!  Að minnsta kosti leiðrétta hana svon það sé heil brú í henni.

"hef­ur upp alla hluti í..."  Hvað þýðir þetta?  Eða "auk þess sem hún út­gáfa Martha Stew­art..."  

Kveðja


mbl.is Martha Stewart selur fyrirtækið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvænt úrslit

 Ég átti ekki von á að þessi breyting yrði samþykkt, hvað þá með svona miklum meirihluta.  Írar eru íhaldssamir að eðlisfari og Kaþólska kirkjan hefur átt þar sterk ítök. Ég þori ekki að fara með það en ég held að Írland sé líka fyrsta landið til að breyta stjórnarskrá til að viðurkenna hjónabönd samkynhneigðra.  Það þýðir að það þyrfti væntanlega stjórnarskrárbreytingu til að nema það úr gildi, svo það eru meiri líkur á að þetta verði til frambúðar.  

Hér í Bandaríkjunum hafa menn verið hálfpartinn að fikta við þetta en það er öruggt að það ætti langt í land með að festa þessi réttindi samkynhneigðra í stjórnarskrá.  Í sumum ríkjum á samkynhneigt sambýlisfólk nánast engin réttindi, sem jafnvel venjuleg pör eiga, t.d. að heimsækja sambýlisfélaga á sjúkrahús eða fá upplýsingar um líðan viðkomandi.  Þannig var það í Texas til skamms tíma en ég held það hafi aðeins losnað um þetta þar.  


mbl.is Samþykkja hjónaband samkynhneigðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband